Undanfarið hafa börn á aldrinum tveggja til fjögurra ára víðs vegar um land fengið bóluefni gegn inflúensu með nefúða í stað sprautu. Það er léttir bæði fyrir foreldra og börn.
„Þetta er ekki eins vont og þau eru ekki eins hrædd,“ segir Anna Ólafsdóttir, fagstjóri hjúkrunar á Heilsugæslunni Hlíðum.
Nefúðinn fer í báðar nasir. „Þau finna varla fyrir þessu og þetta virkar frábærlega af því að þau eru bara svo ánægð með þetta,“ segir Anna.
Þessa vikuna hefur verið opið hús á heilsugæslustöðvum á höfuðborgarsvæðinu frá 15-17. Eftir morgundaginn þarf að panta tíma til að fá nefúðann, í síma hjá sinni heilsugæslu eða í gegnum Heilsuveru, og það kostar ekki neitt.Síðustu daga hafa börn verið bólusett gegn inflúensu með nefúða í fyrsta sinn hér á landi. Nú er meira um hlátur en grát, segir Anna Ólafsdóttir, fagstjóri hjúkrunar á Heilsugæslunni Hlíðum.
Hentar ekki yngri börnum eða börnum með ónæmisbælingu eða eggjaofnæmi
Börn yngri en tveggja ára þarf að bólusetja með hefðbundnum hætti og nefúðinn hentar ekki ónæmisbældum börnum eða með eggjaofnæmi. Hann virkar ekki heldur eins vel á fullorðna. Áherslan að þessu sinni er á tveggja til fjögurra ára.
„En eldri börn mega alveg fá þetta, það er alveg í lagi. Foreldrar koma stundum með bæði börnin og annað er eldra. Þá er alveg í lagi að gefa þeim líka þennan nefúða.“ Sem getur hentað vel, til dæmis fyrir þau sem eru mjög hrædd við að fá sprautu.
Lengi verið notað erlendis en nýjung hér
Bóluefni í formi nefúða hafa verið notuð um árabil í Evrópu og Bandaríkjunum – og upplifunin er ekki aðeins betri fyrir börnin heldur starfsfólkið líka.
„Það er ekkert gaman að stinga börn og þau gráta. Þetta er miklu minna mál og enga stund gert,“ segir Anna. Foreldrar geta líka sprautað nefúðanum á heilsugæslunni.
„Við sýnum þeim bara hvernig þau eiga að gera þetta og þau geta gert þetta bara sjálf hérna með okkur, svo það bara breytir miklu.“
Og er minna grátið?
„Já, nú er bara hlegið,“ segir Anna.
