Meirihluti á framfærsluaðstoð borgarinnar með erlent ríkisfang

Rúm 63% þeirra sem voru á framfærsluaðstoð Reykjavíkurborgar á síðasta ári eru með erlent ríkisfang.

Þar af eru flestir Úkraínumenn. Þar á eftir koma Palestínumenn, þar næst fólk frá Venesúela og þar á eftir Pólverjar. Alls fengu 766 Úkraínumenn framfærsluaðstoð, 168 Palestínumenn, 146 frá Venesúela og 115 Pólverjar. Íslendingar voru 953.

Heildarútgjöld vegna framfærsluaðstoðar voru um 2,6 milljarðar árið 2025 en voru 3,2 milljarðar árið á undan.

Þetta kemur fram í kynningu á svari velferðarsviðs við fyrirspurn endurskoðunarnefndar um fjárhagsaðstoð á fundi velferðarráðs Reykjavíkurborgar í gær. 77% íbúa 18 ára og eldri í Reykjavík voru með íslenskt ríkisfang 2025 og 23% með erlent ríkisfang.

Samkvæmt svari velferðarsviðs fjölgaði notendum fjárhagsaðstoðar mikið á árunum 2021 og 2022 en hefur fækkað stöðugt síðan. Notendur voru 3352 árið 2022 en voru 2591 í fyrra.

600 milljónir til 26 einstaklinga frá 2016

Hlutfall notenda fjárhagsaðstoðar til framfærslu með íslenskt ríkisfang hefur minnkað frá árinu 2021 en stækkað meðal erlendra ríkisborgara. Árið 2021 var hlutfall íslenskra notenda 61% en hlutfall erlendra notenda 39%. Árið 2025 var hlutfall Íslendinga 37% en hlutfall erlendra ríkisborgara 63%.

Á tímabilinu 2016–2025 fengu samtals 11.631 notandi fjárhagsaðstoð til framfærslu. Þar af fengu 26 einstaklingar fjárhagsaðstoð nær alla mánuði tímabilsins og samanlögð fjárhæð aðstoðar til þessa hóps nam um 600 milljónum króna. Ekki kemur fram hvers lenskir þeir eru.

Fleiri karlar fá aðstoð en konur

Fleiri karlmenn þiggja framfærsluaðstoð en konur ef horft er til Íslendinga, Pólverja, Venesúelabúa og Palestínumanna. Úkraínskar konur sem fá slíka aðstoð eru aftur á móti fleiri en úkraínskir karlmenn.

Ef notendur framfærsluaðstoðar eru skoðaðir eftir aldurshópum má sjá að stærstur hluti þeirra er 30–39 ára. Það á við öll árin 2016–2025. 18–19 ára og 67 ára og eldri eru minnstur hluti notenda.

Móttaka hælisleitenda komin yfir þolmörk

Fulltrúar meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks lögðu fram bókun um kynninguna og sögðu mikilvægt að íslenskt samfélag taki vel á móti fólki sem hefur leitað vegna aðstæðna í heimalandi sínu. Það kalli á að ríkið tryggi sveitarfélögum fullnægjandi fjármögnun vegna þess kostnaðar sem fylgi þeirra stefnu.

Fulltrúi Miðflokksins lagði einnig fram bókun og lagði þar til að ríkið stöðvi frekari móttöku og staðsetningu fólks með vernd í Reykjavík. Móttaka hælisleitenda sé þegar komin yfir þolmörk borgarinnar. Það sé ótækt að útsvarsgreiðendur standi undir sívaxandi framfærslu- og þjónustukostnaði vegna óásættanlegrar innflytjendastefnu núverandi ríkisstjórnar sem og forvera hennar.

Erlendir ríkisborgarar séu skemur á fjárhagsaðstoð en Íslendingar

Fulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstrisins lýstu í sinni bókun áhyggjum af neikvæðri umræðu um fjárhagsaðstoð til fólks af erlendum uppruna, þar sem gefið sé í skyn að útlendingar séu í stórum stíl að misnota velferðarkerfið.

Gögnin sýni að fjárhagsaðstoð sé í flestum tilvikum tímabundin og að erlendir ríkisborgarar séu að jafnaði skemur á fjárhagsaðstoð en íslenskir. Ríkið endurgreiði umtalsverðan hluta kostnaðar við aðstoðina. Umræða um fjárhagsaðstoð verði að byggja á staðreyndum.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.