Meirihluti fylgjandi innviðagjaldi

Frumvarp Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra um náttúru- og innviðagjald var lagt fram á Alþingi í gær. Það er í meginatriðum óbreytt frá upphaflegum drögum sem vöktu litla kátínu hjá ferðaþjónustunni. Ný könnun bendir hins vegar til þess að meirihluti landsmanna styðji gjaldtökuna.

Í frumvarpinu er lagt til að innviðagjaldið gildi fyrir þrjá af fjölsóttustu ferðamannastöðum landsins sem eru í eigu ríkisins, Gullfoss, Geysi og Þingvelli. Gjaldið verður 4.500 krónur yfir sumartímann og 3.000 krónur yfir vetrartímann og veitir aðgang að framangreindum stöðum í eitt ár. Stefnt er að því að hefja gjaldtöku 1. maí.

Þeir sem borga skatta hér á landi þurfa ekki að borga innviðagjald en þurfa engu að síður að sækja sér aðgangspassa að kostnaðarlausu.

Óheimilt verður að rukka fyrir bílastæði á landi ríkisins á umræddum stöðum. Einkaaðilar rukka nú þegar fyrir bílastæði á Gullfossi og Geysi og helst sú gjaldtaka óbreytt, kjósi landeigendur svo. Fulltrúar Ferðamálastofu munu ganga úr skugga um hvort gestir borgi gjaldið með úrtaksskoðunum og þeir sem ekki framvísa passanum eiga á hættu að verða sektaðir. Ráðherra mælir að líkindum fyrir frumvarpinu á morgun.

Meirihluti fylgjandi gjaldtöku

Könnun Gallup sem gerð var fyrir Samfylkinguna leiðir í ljós að 62 prósent eru fylgjandi náttúru- og innviðagjaldi. 24,6 prósent segjast andvíg og 13,4 prósent tóku ekki afstöðu. Af þeim sem tóku afstöðu eru tæplega 72 prósent hlynnt gjaldtökunni en rúmlega 28 prósent andvíg.

Kjósendur Sjálfstæðisflokksins skera sig nokkuð úr í afstöðu sinni. 35 prósent þeirra eru hlynnt gjaldtökunni en 53 prósent eru henni andvígir. Meirihluti kjósenda annarra flokka er hlynntur gjaldtöku.

Könnunin var gerð dagana 5. til 16. nóvember. Úrtakið var 1.980 manns og tóku 845 þátttakendur afstöðu. Allir þátttakendur fengu formála að spurningunni þar sem fyrirhugaðri gjaldtöku var lýst, hversu há upphæðin verður og að hvaða ferðamannastöðum gjaldið veitir aðgang að.

Búast má við að tekist verði á um frumvarpið á þingi þegar það verður tekið fyrir. Ferðaþjónustan hefur lagst gegn gjaldtökunni af ótta við að hún skerði samkeppnishæfni Íslands sem ferðamannastaðar. Þá hefur sveitarstjórn Bláskógabyggðar mótmælt kröftuglega og talar hún um „Bláskógaskatt“ þar sem allir þrír staðirnir sem eru undir í frumvarpinu eru í sveitarfélaginu.