Minigarðurinn í Skútuvogi lokar dyrum sínum í dag. Stjórn Munnbitans ehf., sem rekur Minigarðinn, ætlar að óska eftir gjaldþrotaskiptum.
„Eftir rúmlega sex ára þrautagöngu er því miður ekkert annað í stöðunni en að hætta rekstri,“ segir í tilkynningu frá Sigmari Vilhjálmssyni, stjórnarformanni og hlutahafa í Munnbitanum.
„Þótt þetta sé því miður eina skynsamlega niðurstaðan þykir okkur afar leitt að kveðja frábæra starfsfólkið okkar. Við þökkum öllum sem komu, spiluðu, fögnuðu og horfðu með okkur í Minigarðinum. Takk fyrir okkur.“
