Mjög miklar umferðartafir eru í Reykjavík vegna lokunar ramps frá Bústaðavegi niður á Hafnarfjarðarveg, í átt að Kópavogi, þar sem malbikunarframkvæmdir eru.
Logi Sigurjónsson, aðalvarðstjóri í umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir umferð á Bústaðavegi ganga mjög hægt vegna þessa.
Hjáleið sé um Miklubraut og Kringlumýrarbraut en búast megi við verulegum töfum þar líka þar sem stór hluti umferðar fari venjulega um Bústaðaveg.
Samkvæmt heimild Vegagerðarinnar til framkvæmdanna eiga þær að standa til klukkan 17.
