Bág fjárhagsstaða Náttúruminjasafns Íslands virðist ein helsta forsenda vilja stjórnvalda til sameiningar þess og Náttúrufræðistofnunar. Áform um lagasetningu verða lögð fram í samráðsgáttinni. Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið tilkynna það í sameiningu á vef Stjórnarráðsins.
Þar segir að sameinuð stofnun geti veitt heildstæðari þjónustu, styrkt þekkingu um íslenska náttúru og gert niðurstöður rannsókna aðgengilegri skólum og almenningi.
Markmiðið sé að til verði ný stofnun sem tengir rannsóknir og varðveislu vísinda- og náttúrugripa ásamt því að fræða og miðla. Hún geti jafnframt stutt stefnumótun stjórnvalda varðandi loftslagsmál, náttúruvernd og líffræðilega fjölbreytni.
Nútímaleg grunnsýning í undirbúningi
Náttúruminjasafnið flytur að óbreyttu í Náttúruhús við Safnatröð á Seltjarnarnesi á næsta ári þar sem nútímaleg margmiðlunargrunnsýning um hafið er í undirbúningi. Safnið hefur verið rekið með halla, sem uppsafnaður nam tæpum 420 milljónum í lok síðasta árs, þar af 270 vegna grunnsýningarinnar.
Þar voru um áramót tæp átta stöðugildi en um 70 hjá Náttúrufræðistofnun. Ríkisendurskoðun hefur bent á að verkefni stofnana skarist og sagt mikinn ávinning fylgja sameiningu.
Með henni styrkist starfsemi Náttúruminjasafnsins. Hvorki sé gert ráð fyrir viðbótarfé til safnsins í fjármálaáætlun vegna hallans né sýningargerð og framkvæmdum og því sé fjárhagsleg endurskipulagning í vinnslu samhliða sameiningaráformunum.
Fyrir liggi að Náttúruminjasafnið geti ekki sinnt verkefnum sínum með óbreyttu fjárframlagi og halla. Verkefnisstjórn á vegum menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis undirbýr sameininguna í samstarfi við forstöðumenn beggja stofnana. Frumvarp er væntanlegt á vorþingi.
