Rósa Líf Darradóttir, formaður samtaka um dýravelferð, segir það jákvætt að umræða um dýravelferð sé komin upp á yfirborðið. Myndefni innan úr svínabúi Stjörnugríss eftir innbrot hefur vakið mikla athygli um helgina og spurningar um dýravelferð.
„Þessi iðnaður þolir ekki dagsljósið og það er nauðsynlegt að neytendur sjái hvernig varan verður til. Samfélagið er að bregðast við og þetta er í raun jákvæður hlutur, þetta er komið á yfirborðið, þetta er ekki einkamál hvernig farið er með dýrin.“
Rósa var gestur í Kastljósi í kvöld ásamt Trausta Hjálmarssyni, formanni Bændasamtakanna.Formaður samtaka um dýravelferð segir nauðsynlegt að neytendur sjái hvernig varan verður til. Formaður Bændasamtakanna lítur svo á að það sem komi fram í myndefni innan úr grísabúi Stjörnugríss sé frávik.
Trausti segist bera virðingu fyrir sjónarmiðum fólks sem þyki myndefnið vont. Hann líti þó svo á að það sem komi fram í myndefninu sé frávik.
„[…] það er eftirlit með þessum búskap og eftirlitsskýrslur sýna ekki að þetta sé hinn daglegi raunveruleiki á þessu búi.“
Hann segir alvarleg frávik í íslenskum landbúnaði hverfandi fá.
„Það fæðast andvana grísir, það fæðast andvana lömb, það fæðast andvana kálfar og svo framvegis. Ég get fullyrt að það sé ekki normið. Þess vegna get ég leyft mér að tala um að þetta séu frávik frá því sem reglulega gerist í þessum búrekstri.“
„Á ekkert skylt við landbúnað eða bændur“
Spurð hvort ekki þurfi að treysta eftirliti MAST, sem ekki hafi fundið mörg frávik, segir Rósa að MAST sé hluti af kerfinu. Farið sé í eina eftirlitsheimsókn á ári sem sé tilkynnt um fyrir fram.
Hún gagnrýnir viðbrögð bændasamtakanna.
„Það sem kemur mér á óvart er að Bændasamtökin stökkvi til og svari fyrir þessa meðferð og eigi að telja okkur trú um að þetta sé eðlileg meðferð á dýrum og sé landbúnaður. Í mínum huga á þetta ekkert skylt við landbúnað eða bændur. Þetta er ekki bóndabær sem við erum að tala um. Þetta er verksmiðja.“
