Nokkrir með réttarstöðu sakbornings vegna banaslyss á Breiðamerkurjökli

Lögreglan á Suðurlandi hefur lokið rannsókn á banaslysi sem varð á Breiðamerkurjökli í ágúst 2024. Ísveggur hrundi yfir ferðamenn með þeim afleiðingum að bandarískur karlmaður lést og bandarísk kona slasaðist alvarlega.

Rannsókn var áður hætt án þess að ákæra væri gefin út en lögregla fékk fyrirmæli um að skoða ákveðin atriði betur, segir Þorsteinn M. Kristinsson, aðalvarðstjóri á Suðurlandi.

Lögregla hefur vísað rannsókninni til ákærusviðs sem ákveður hvort einhver verður ákærður eða málið látið niður falla. Einnig getur ákærusvið beint því til lögreglu að ráðast í frekari rannsóknir ef þörf krefur. Þetta kemur fram í svari lögreglu við fyrirspurn fréttastofu.

Nokkrir hafa réttarstöðu sakbornings, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Ekki fékkst uppgefið hversu margir eða hverjir þeir eru.

Mikill viðbúnaður var þegar ísveggurinn hrundi. Óttast var að tveir hefðu lent undir ísnum, til viðbótar við manninn sem lést og konuna sem slasaðist alvarlega. Eftir leit í um sólarhring kom í ljós að svo var ekki.

Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum frá Þorsteini M. Kristinssyni hjá lögreglunni á Suðurlandi.