Nýjar almenningssamgöngur létta foreldrum lífið

Nokkrir foreldrar á Djúpavogi tóku sig saman í lok ágúst 2025 og sendu sveitarfélaginu formlegt erindi um hvort hægt væri að koma á almenningssamgöngum milli Djúpavogs og Egilsstaða, tveggja byggðakjarna innan sama sveitarfélags.

Fjallað var um málið í útvarpsþættinum Víðsvegar á Rás 1. Hægt er að hlusta á þáttinn í spilara hér fyrir neðan.

Fólkið á allt börn sem ganga í Menntaskólann á Egilsstöðum. Lífið hefur einkennst af miklu skutli, sérstaklega þegar vegurinn yfir Öxi lokast. Þá tekur ferðin lengri tíma enda þarf að þræða firðina til að komast á milli.

„Þetta voru margar bílferðir hjá mörgum foreldrum að sækja börn og skutla til baka,“ segja Hafdís Reynisdóttir og Þuríður Elísa Harðardóttir, mæður drengja í menntaskólanum.

Þær segja að almenningssamgöngur bæti líka öryggi barnanna enda getur færðin verið slæm hvort sem farið er yfir Öxi eða með fjörðum. Rúmlegar 20 nemendur frá Djúpavogi eru í Menntaskólanum á Egilsstöðum.

Oddný Anna Björnsdóttir, heimastjórnarfulltrúi á Djúpavogi, segir mikla ánægju með verkefnið. „Einn sagði við mig að þetta væri líklega besta verkefni sem gamli Djúpavogshreppur hefði farið í.“

Aksturinn hófst í lok ágúst og er tilraunaverkefni til eins árs. Múlaþing fékk 10 milljóna króna styrk í mars frá innviðaráðuneytinu til að koma á reglubundnum almenningssamgöngum milli Egilsstaða og Djúpavogs. Fjögur verkefni hlutu styrk með það að markmiði að bæta almenningssamgöngur milli byggðarlaga.

Nemendur við menntaskólann eiga forgang en öðrum gefst einnig kostur á að nýta sér ferðirnir.

Hlusta má á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan.Nemendur frá Djúpavogi sem ganga í Menntaskólann á Egilsstöðum geta nú tekið rútu í og úr skóla um helgar. Mikil ánægja er með framtakið sem er tilraunaverkefni til eins árs.