Nýr vefur – sama veður

Veðurstofan hefur uppfært vefsíðu sína, vedur.is. Mikilvægar upplýsingar eiga að vera skýrari og aðgengilegri á vefnum, sem er fyrsti áfangi í endurnýjun vefsvæða Veðurstofunnar.

Viðmót vefsins er breytt og þar er hægt að finna veðurspár fyrir fleiri staði, fleiri möguleika í kortasjá og betri yfirsýn yfir viðvaranir og náttúruvá.

Í tilkynningu frá Veðurstofunni segir að vefurinn verði endurnýjaður í áföngum. Í dag fara í loftið síður sem notendur nota mest: veðurpár, jarðskjálftagögn, viðvaranir, tilkynningar frá sólarhringsvaktinni og fréttir.

Prufuútgáfa nýja vefs Veðurstofunnar hefur verið í boði á vefslóðinni gottvedur.is. Eldri vefur Veðurstofunnar er enn aðgengilegur á vefslóðinni eldri.vedur.is