Borgarfulltrúi Samfylkingarinnar segir óeðlilegt að flokkar í meirihluta hafi heimild til að selja mikilvæga innviði. Fulltrúar Samfylkingar lögðu í vikunni fram tillögu um að það þurfi aukinn meirihluta þegar á að selja mikilvæg innviðafyrirtæki. Þetta er í kjölfar frétta um væntanlega sölu á Ljósleiðaranum.
Pétur Marteinsson, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, var gestur í Morgunútvarpinu á Rás 2 og ræddi tillöguna.
„Við höfum séð að hingað til, þegar flokkar komast til valda, þá ákveði þeir að selja innviði eða fyrirtæki í eigu almennings. Það tekur bara stuttan tíma. Einn flokkur eða tveir flokkar bara ákveða að selja og okkur finnst það óeðlilegt. Þetta eru óafturkræfar ákvarðanir,“ segir Pétur.
Oft ráðist á svona innviði
„Þannig okkur finnst eðlilegt að það sé aukinn meirihluti sem þarf að samþykkja sölu á innviðum og mikilvægum fyrirtækjum borgarinnar og okkur finnst svo sannarlega Ljósleiðarinn vera eitt af þessum fyrirtækjum.“
Borgin eigi tvö ljósleiðarafyrirtæki. Tillagan gangi ekki út á að það sé bannað að selja fyrirtæki sem þessi heldur að slíkt fái betri umræðu.
„Ljósleiðarinn heldur mögulega verðinu á fjarskiptum til okkar, almennings og fyrirtækja, aðeins niðri vegna þess að hið opinbera er oft með aðeins minni arðsemiskröfur en einkafjárfestar. En svo ekki síst út af breyttri heimsmynd. Það eru fjölþátta ógnir og það er oft ráðist á svona innviði,“ sagði Pétur.
Seldu Landsvirkjun á tombóluverði
Íslendingar taki fjarskiptainnviðum sem sjálfsögðum hlut í dag og því sé vert að hugsa sig vel um áður en farið sé í sölu á Ljósleiðaranum. Hann minnir á að Reykjavíkurborg hafi selt 45% eignarhlut sinn í Landsvirkjun árið 2006.
„Sem er búið að sýna sig núna að var á miklu tombóluverði og við urðum af alveg gríðarlega miklum peningum og það sama þegar við seldum Símann á sínum tíma, HS Orku. Einkavæðingin hefur ekkert alltaf gengið vel. Versta dæmið er þegar bankarnir voru einkavæddir á sínum tíma fyrir hrun.“
Einkafyrirtæki hugi fyrst og fremst að því að ávaxta fyrir sína eigendur, sem sé eðlilegt, en stíga þurfi varlega til jarðar þegar mikilvægir innviðir og fyrirtæki borgarinnar séu undir.
Lífeyrisþegar mest andvígir
Samfylkingin lét gera könnun um fyrirhugaða sölu fyrir sig. Gallup framkvæmdi könnunina. 555 svöruðu og voru 57% þeirra andvíg því að borgin selji hluta eða allan eignarhlut sinn í Ljósleiðaranum. 21,3% eru hlynnt því og 21,8% svöruðu hvorki né.
Barnlaus pör á bilinu 18–45 ára og fólk á lífeyrisaldri voru mest andvíg sölunni samkvæmt könnuninni. Þá voru 50% kvenna andvíg henni en 63% karlmanna. 15% kvenna eru hlynnt sölu Ljósleiðarans og 26% karlmanna. 34% kvenna svara hvorki né. 72% karlmanna yfir 60 ára eru á móti sölu Ljósleiðarans.
Þeir sem myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn eða Framsóknarflokkinn ef gengið yrði til Alþingiskosninga í dag voru hlynntastir því að selja Ljósleiðarann. Kjósendur VG, Samfylkingar og Flokks fólksins voru mest andvígir því.
