Of lítið af tillögum Grindvíkinga að finna í áætlunum Þórkötlu

Pétur Markan bæjarstjóri Grindavíkur vonast til að Þórkatla endurskoði endurkaupaáætlun sína sem kynnt var fyrir Grindvíkingum í gær. Bæjarstjórn Grindavíkur lýsti yfir vantrausti á vinnubrögð og framgöngu fasteignafélagsins Þórkötlu í dag.

Haldinn var íbúafundur í Gjánni í Grindavík í gær þar sem íbúar sögðust heldur ekki treysta fasteignafélaginu.

„Það sem snýr fyrst og fremst að Grindvíkingum er að samráð og samtal við Grindvíkinga um það að endurkaupaáætlunin taki raunverulega mið af aðstæðum hefur bara verið of lítið og of lítið af tillögum Grindvíkinga hefur farið inn í endurkaupaáætlunina,“ segir Pétur.

Íbúum stendur til boða að kaupa eignirnar til baka á upprunalegu söluverði, leigja þær eða taka þær frá í rúmt ár. Pétur segir þó að ekki sé um hefðbundin fasteignaviðskipti að ræða.

„Þetta er einfaldlega björgunaraðgerð á sínum tíma sem verður að endurreisnaráætlun,“ segir Pétur sem telur að endurkaupaáætlun Þórkötlu þurfi að auðvelda Grindvíkingum að snúa aftur heim.

„Þar skiptir kaupverð gríðarlega miklu máli, það skiptir líka máli hvernig áætlunin er tímasett,“ segir Pétur sem kveðst vongóður um að Þórkatla endurskoði áætlun sína með auknu samráði við Grindvíkinga.

„Og haldi áfram að vinna með þessa áætlun þangað til hún verður aðgengileg Grindvíkingum,“ segir Pétur og tekur fram að bæjarbúar séu ekki á höttunum eftir ölmusu.

„Þetta snýst fyrst og fremst um það að þessi björgunaraðgerð og síðan endurreisnaráætlun gangi upp og þetta þarf að vera aðgengilegt fyrir fólk sem var rýmt á sínum tíma, keypti meðal annars fasteignir annars staðar og þetta þarf að ganga upp þannig að þetta sé raunhæft,“ segir Pétur.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.