Ófært og víða hálka, snjóþekja og þæfingur á vegum

Unnið verður að mokstri með morgninum að því er segir á vef Vegagerðarinnar. Einnig er þungfært víða á láglendi og ófært norður í Árneshrepp.

Heiðavegir á Vestfjörðum eru sagðir opnir en víða hálka, snjóþekja eða þæfingur. Holtavörðuheiði er opin og unnið að mokstri á Bröttubrekku, sem er lokuð. Snjóþekja er á götum höfuðborgarsvæðisins.

Hálka og hálkublettir eru víðast hvar á vegum suðvestanlands og flughált á Suðurstrandarvegi, á Grafningsvegi og Þingvallavegi við Írafoss að Lyngdalsheiði.

Snjóþekja eða hálka er á flestum vegum norðanlands þar sem unnið er að mokstri. Vegurinn milli Skaftafells og Djúpavogs er lokaður og flughált austan Kirkjubæjarklausturs, annars er hálka og hálkublettir á vegum suðaustanlands og á Suðurlandi.

Öll flugumferð er á áætlun ennþá, jafnt innan- sem milli landa, utan þess að komu þotu Icelandair frá Denver í Bandaríkjunum hefur verið aflýst.

Veðurfræðingur Vegagerðarinnar hvetur ferðalanga til að fylgjast með veðurspám og viðvörunum og haga ferðalögum í takt við það.

Þótt dregið hafi úr hríðarveðrinu á Austurlandi og Austfjörðum, er vindur víða 18 til 23 metrar á sekúndu með hviðum um og yfir 35 metra og snjókomu.

Veðurfræðingurinn áréttar að þótt dragi mjög úr úrkomunni um hádegi verði áfram dálítil snjókoma og skafrenningur fram eftir degi. Sunnan Vatnajökuls, austan Öræfa, verður mjög hvass vindur þar sem hviður geta náð allt að 45 metrum á sekúndu. Þar dregur einnig úr vindi síðdegis.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.