Ófaglegt ferli eftir afsögn forstjóra Landsvirkjunar

Sigurður Kári Kristjánsson, lögmaður og fyrrverandi Alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, segir það óheimilt samkvæmt lögum hafi Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, rætt um málefni Landsnets, arðgreiðslur og meðferð skuldabréfs Landsvirkjunar við stjórn Landsvirkjunar.

„Það segir þar að í stjórnum slíkra félaga eins og Landsvirkjunar sé einstökum félagsmönnum, sem eru þá eigendurnir sem eru handhafi hlutabréfsins í Landsvirkjun, óheimilt að gera nokkuð sem heyrir undir verksvið stjórnar og framkvæmdastjórnar,“ segir Sigurður Kári. Daði Már er þar í hlutverki eiganda Landsvirkjunar.

„Ef menn voru að ræða þetta þá er eigandinn að hafa mögulega íhlutun í hluti sem stjórn og forstjóri eiga að hlutast til um til hagsbóta fyrir félagið. Eigandinn má ekki koma þarna inn.“

Sigurður Kári ræddi mál Landsvirkjunar í Silfrinu í kvöld ásamt Jóni Trausta Reynissyni, rithöfundi og blaðamanni, Svanborgu Sigmarsdóttur, framkvæmdastjóra Viðreisnar, og Rósu Björk Brynjólfsdóttur, formanni Vinstri grænna.

Horfa má á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér að neðan. Umræðan um Landsvirkjun hefst þegar 12:35 mínútur eru liðnar af þættinum.Fjármálaráðherra er óheimilt samkvæmt lögum að ræða arðgreiðslur og skuldabréf við stjórn Landsvirkjunar, segir Sigurður Kári Kristjánsson, lögmaður og fyrrverandi Alþingismaður. Hann segir stjórnarhætti Landsvirkjunar óeðlilega.

Ekkert faglegt við þetta ferli

Sigurður segir það rangt sem Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hafi sagt um fundi ráðuneytisins með stjórn Landsvirkjunar. Hún hafi sagt að fundirnir hefðu verið eðlilegir og fjöldi þeirra í takt við það sem tíðkast hefði.

„Þetta er rangt. Það hafa komið fram stjórnarmenn sem hafa setið í stjórn Landsvirkjunar síðustu áratugi fram og bent á að þessir stjórnarhættir hafi aldrei verið viðhafðir.“

Hann vill ekki ganga svo langt að kalla eftir afsögn ráðherra en segir að eitthvað verði þó að gefa eftir.

„Það er ekkert faglegt við það ferli sem við höfum verið að horfa framan í síðustu vikurnar. Forstjórinn er farinn. Fjármálastjórinn er farinn. Ráðherrann er undir rannsókn, fyrrverandi forstjóri og stjórn eru að rífast opinberlega í fjölmiðlum og það eru skeytasendingar milli stjórnarinnar og ráðherrans. Þetta er ekki gott. Það er lítið traust sem ríkir til æðstu stjórnenda fyrirtækisins. Það verður bara eitthvað að gefa eftir í því.“


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.