Ökumaður látinn eftir að bíll hafnaði í Kleifá

Ökumaður bíls sem hafnaði í Kleifá í umferðarslysi í gærmorgun er látinn. Hann sat fastur í bifreiðinni um tíma.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Vesturlandi.

„Þegar björgunarlið kom á vettvang náðist ökumaður út úr bifreiðinni og var hann fluttur með þyrlu á Landspítalann. Hann var úrskurðaður látinn nokkru síðar.“

Farþegi sem einnig var í bílnum komst út af sjálfsdáðum. Bæði farþegi og ökumaður eru erlendir ferðamenn á þrítugsaldri.

Farþeginn var fluttur með sjúkrabíl á Landspítala til skoðunar. Meiðsl hans eru talin minniháttar.

Tildrög slyssins eru til rannsóknar hjá lögreglu.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.