Ölfusárbrú komin yfir ána

Nýja Ölfusárbrúin er komin yfir ána. Færsla brúargólfsins gekk framar vonum því upphaflega var áætlað að það tæki allt að tíu daga að mjaka því yfir ána en það tóks á fimm dögum. Brúargólfið kom yfir ána um hádegi í dag.

Enn á eftir að draga brúargólfið um þrjátíu metra til viðbótar til að klára verkið. Það verður gert á þriðjudag að sögn forstjóra ÞG-verks.

Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að næstu daga verði mastrið tekið niður sem hélt uppi framenda brúarinnar og stálvirkið fest við brúarstólpana.

Brúin er 330 metrar á lengd og vegur rétt um tvö þúsund tonn. Búist er við að hún verði tilbúin haustið 2028.