Opin fyrir viðveru fleiri hermanna á Íslandi

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist opin fyrir viðveru fleiri hermanna hér á landi frá NATO ríkjum til þess að tryggja öryggi landsins. Hún sér þó ekki fyrir sér að bandarískir hermenn hafi hér varanlega viðveru aftur.

„Við erum opin fyrir því að sjá fleiri hermenn á Íslandi sem part af þessari NATO-regnhlíf sem við erum undir,“ sagði Kristrún í viðtali við fréttastofu Bloomberg í gær þar sem hún ræddi meðal annars heimsókn Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í október.

Hún sagði Bandaríkin og Ísland eiga í viðræðum um öryggi og varnir og að heimsókn Rubio hefði verið nýtt til að styrkja það samband. Eftir að herstöðinni á Keflavíkurflugvelli var lokað 2006 hafi þó aðrar NATO þjóðir stigið inn varðandi loftrýmisgæslu og eftirlit í kringum landið. Því telur hún ekki nauðsynlegt að koma varanlegri viðveru hermanna aftur á frá einni þjóð.

Kristrún viðurkenndi að meiri óreiða hefði verið í alþjóðamálum í kringum norðurslóðir eftir að málefni Grænlands komust í hámæli og umleitanir Donalds Trump forseta um að taka yfir landið.

„Við höfum verið mjög skýr með það að Grænlendingar eru vinir okkar og okkar nálægasti nágranni og að nauðsynlegt er að virða fullveldi þeirra og alþjóðleg lög,“ sagði Kristrún.

Hún sagði þó að málið allt hefði vakið athygli á norðurslóðum og sýnt að ekki væri aðeins nauðsynlegt að tryggja öryggi á svæðinu heldur væri einnig tækifæri þar að finna.

Aðspurð um niðurstöður þingkosninganna í Bandaríkjunum og hvort þær breyttu sambandi Íslands og Bandaríkjanna sagði Kristrún að vissulega breyttu þær pólitísku landslagi þar en vildi ekki tjá sig um það

„En við höfum átt stöðugt vinnusamband við Bandaríkin síðustu ár,“ sagði Kristrún sem sagðist virða vilja bandarískra kjósenda.

Fréttin hefur verið uppfærð.