Óttaðist að pólitísk afskipti myndu gera Landsvirkjun óstarfhæfa

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, hóf að gera athugasemdir við starfshætti stjórnar og fjármálaráðuneytisins í lok síðasta árs. Hann taldi afskipti stjórnarinnar af starfi fyrirtækisins óeðlileg og jafnvel ólögleg og óttaðist að þau stefndu rekstri Landsvirkjunar í hættu.

Eftir að Hörður Arnarson tilkynnti um afsögn sína sem forstjóri Landsvirkjunar óskaði fréttastofa eftir öllum samskiptum milli fjármálaráðuneytisins annars vegar og stjórnar og forstjóra Landsvirkjunar hins vegar. Ekki fengust öll gögn afhent en þau gögn sem þó bárust sýna að Hörður hafi fyrst viljað vekja athygli á því sem hann taldi vera óeðlileg afskipti af rekstri fyrirtækisins í nóvember í fyrra. Það er hálfu ári eftir að ný stjórn Landsvirkjunar er kjörin á aðalfundi.

Þá óskaði hann eftir fundi með fjármálaráðherra til að fara yfir samskipti Landsvirkjunar og fjármálaráðuneytisins. Honum varð ekki að ósk sinni því á Þorláksmessu fékk hann þau skilaboð frá stjórnarformanni að Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra hefði óskað eftir því að fundinum yrði breytt. Þann 6. janúar fundaði Daði Már með stjórninni í ráðuneytinu þar sem rætt var um hlutverk stjórnar, stjórnarhætti og upplýsingamiðlun milli Landsvirkjunar og ráðuneytis. Hörður sat ekki þann fund.

Minnisblað um lagalega áhættu og ábyrgð í rekstri Landsvirkjunar

Það er svo í júní í fyrra sem Hörður sendir stjórn Landsvirkjunar þriggja blaðsíðna minnisblað þar sem gerðar eru alvarlegar athugasemdir við stjórnarhætti.

Í minnisblaðinu lýsir Hörður áhyggjum af auknum samskiptum milli fjármálaráðuneytis og stjórnar Landsvirkjunar utan aðalfunda. Hætta sé á því að slík samskipti verði túlkuð sem pólitísk afskipti. Ef Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, túlki það þannig gæti það leitt til þess að Landsvirkjun verði óstarfhæf þar sem allar helstu ákvarðanir þyrfti að senda til ESA. „Ramminn um hlutverk og heimildir […] er settur upp þannig að ráðuneytið hefur ekki boðvald yfir stjórn og rekstri Landsvirkjunar og hann verður að virða,“ segir í minnisblaðinu.

Þá séu dæmi þess efnis að ráðuneytið hafi átt frumkvæði að fundum með stjórninni þar sem forstjóri var ekki boðaður. Þar hafi jafnvel verið fjallað um málefni sem ekki ættu að ræðast við ráðuneytið og óskað eftir upplýsingum sem óheimilt er að veita. Vísað er til þess að störf stjórnar hafi í auknum mæli farið fram utan stjórnarfunda og að stjórnarmenn hafi jafnvel haft bein afskipti af daglegum rekstri, svo sem með því að ræða málefni fyrirtækisins beint við ytri hagaðila og starfsmenn Landsvirkjunar.

Segist Hörður telja það skyldu sína að benda á að hugsanlega sé ekki farið að lögum og að það geti skapað alvarlega áhættu. Loks segir Hörður: „Á þeim 16 árum sem ég hef starfað sem forstjóri Landsvirkjunar hef ég ekki áður lent í jafn erfiðri stöðu til að sinna starfi mínu, eins og þeirri sem nú er komin upp“.

Segjast hafa tekið athugsemdir Harðar alvarlega

Stjórn Landsvirkjunar fór þess á leit við Áslaugu Árnadóttur lögmann að skila lögfræðiáliti um stjórnskipulag Landsvirkjunar. Álitið er ítarlegt, 18 blaðsíður, en það er fyrst og fremst reifun á því hvernig túlka beri lög og reglur um stjórnskipulag Landsvirkjunar. Ekki er tekin afstaða til þess hvort stjórnarmenn eða ráðuneytið hafi í raun farið út fyrir heimildir sínar í einstökum tilvikum en tekið er fram að stjórnin og ráðuneytið hafi töluvert svigrúm til samskipta og athafna og að skýr mörk séu á milli hlutverks stjórnar, forstjóra og eiganda fyrirtækisins.

Landsvirkjun sendi frá sér ályktun undir kvöld þar sem vísað er til minnisblaðs Harðar. Þar segir að stjórn fyrirtækisins hafi tekið athugasemdir Harðar alvarlega og meðal annars leitað ofangreinds lögfræðiálits Áslaugar. „Niðurstaðan er skýr: Yfirferð málsins hefur ekki leitt í ljós að stjórn Landsvirkjunar hafi farið út fyrir lögbundið hlutverk sitt eða heimildir. Ágreiningur hefur hins vegar verið um vinnubrögð og túlkun á hlutverkum stjórnar, stjórnarformanns og forstjóra.“

Þá segir í yfirlýsingunni að fundargerðir staðfesti að ríkið hafi á engan hátt haft óeðlileg áhrif á stjórnun félagsins. „Ákvarðanir stjórnar eru teknar á stjórnarfundum, á viðskiptalegum forsendum og með hagsmuni Landsvirkjunar að leiðarljósi.“

Tveimur vikum síðar svarar Hörður áliti Áslaugar. Tekur hann fram að álit hennar sé vel unnið en tekur þó fram að nauðsynlegt sé að skýra betur mörkin milli stjórnar, stjórnarformanns, forstjóra og ráðuneytisins. Landsvirkjun verði að geta sýnt fram á að ákvarðanir séu teknar sjálfstætt, á réttum vettvangi og með formlegum og gagnsæjum hætti. Það sé sérstaklega mikilvægt vegna samkeppnisstöðu fyrirtækisins og reglna um ríkisaðstoð.

Lítið traust á báða bóga

Þann 11. september sendir starfsmaður ráðuneytisins samantekt á ráðherra og aðra starfsmenn ráðuneytisins. Er umfjöllunarefnið fundur starfsmanna ráðuneytisins með formanni og varaformanni stjórnar Landsvirkjunar. Tölvupósturinn ber yfirskriftina Landsvirkjun (viðkvæmt).

Segir í samantektinni að verið sé að skoða þá stöðu sem upp er komin en að „lítið traust virðist vera til staðar á báða bóga sem gerir stjórn erfitt fyrir að sinna sínu starfi“. Kemur fram að stjórn Landsvirkjunar hafi í samstarfi við Boston Consulting lagt í viðamikla vinnu í stefnumótun og samhliða hafi verið gerð úttekt á rekstri félagsins. Stefnt væri að því að kynna nýja stefnu og breytingar sem stjórnin hyggist gera „við fyrsta hentugleika“.

Um það bil tveimur vikum síðar segir Hörður af sér sem forstjóri.

Síðasta bréfið til Daða

Í síðustu viku, þann 26. október, sér Hörður ástæðu til að senda Daða Má tölvupóst eftir viðtal við ráðherrann í Bítinu á Bylgjunni. Þar bendir Hörður á að frá því ný stjórn tók við í fyrra hafi verið haldnir fimm fundir þar sem hann hafi verið beðinn um að víkja eða hann ekki verið upplýstur um fundina fyrr en eftir á. Við einn þessara funda hafi hann engar athugasemdir. „Ég hef ítrekað gert formlegar athugasemdir við stjórn Landsvirkjunar um að mér hafi verið meinað að taka þátt í hinum fjórum stjórnarfundunum og tel að það hafi verið óheimilt á grundvelli þeirra laga sem gilda um Landsvirkjun,“ segir í tölvupósti Harðar. Hann telur upp tvo fundi sem hann var beðinn um að víkja af og bætir við að einn fundinn hafi hann ekki verið upplýstur um fyrr en þremur mánuðum eftir að hann var haldinn og annan fund þremur vikum síðar.

Stjórnin hafnar afskiptum

Í áðurnefndri yfirlýsingu Landsvirkjunar er því hafnað að Herði hafi verið haldið frá umræðu um rekstur félagsins. „Á um eins og hálfs árs starfstíma stjórnarinnar hefur hún tvisvar fundað án hans þegar fjallað var um athugasemdir hans við störf stjórnarinnar. Á tveimur öðrum fundum vék hann af fundi undir dagskrárliðum sem vörðuðu hann sjálfan, eins og við á í slíkum tilvikum. Stjórn hefur lögbundið hlutverk um eftirlit með störfum forstjóra. Til að sinna því hlutverki er eðlilegt að hún ræði þau mál án hans viðveru.“

Þá er því sömuleiðis hafnað að stjórnin hafi skipt sér af daglegum rekstri Landsvirkjunar. Í þeim fáu tilvikum sem stjórnin hafi átt samskipti við ytri aðila eða starfsfólk hafi það verið gert í samráði við og með samþykki Harðar. „Engar ákvarðanir eru hafnar yfir gagnrýni og sjálfsagt að ræða vinnubrögð á málefnalegan hátt. Það er hins vegar ekki rétt að halda því fram að vikið hafi verið frá lögum eða góðum stjórnarháttum. Slíkar fullyrðingar samrýmast ekki gögnum málsins og því telur stjórnin rétt að leiðrétta þær,“ segir í yfirlýsingunni.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.