Landeigendur í Patreksfirði óskuðu eftir að fá að eiga flothring af sjókví sem rak á strendur þeirra nýverið. Hringurinn hafði verið á reki og strand til skiptis í firðinum síðan um miðjan september. Slíkur hringur getur vegið allt að 20 tonn og er að miklu leyti gerður úr plasti. Vísindamenn fjölluðu um plastmengun frá sjókvíaeldi á ráðstefnunni Atlantic Plastics sem fram fór í Hörpu á dögunum. Hún er töluverð.
„Svo eru það göngubrettin sem eru í kringum, sem þú getur labbað í kring á þessum mannvirkjum, þau tapast all mikið og reka hingað og þangað. Það er sem sagt bara heilmikið tap af plasti í fiskeldi,“ segir Haraldur Arnar Einarsson, sérfræðingur hjá Hafrannsóknastofnun.
Þá segir Haraldur einnig að fóðurrörin sem notuð eru til þess að gefa fiskunum séu úr plasti og þau eyðist að innan.
„Fóðurrörin sem þau nota, þau dæla fóðri í gegnum rör og blása þeim yfir til að fóðra fiskinn. Þessi fóðurrör eru úr plasti. Fóðrið er eins og gæludýramatur, svona hörð korn og þau skrapa plaströrin að innan. Og það er bara microplastic mengun.“
