Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra segir aðstæður svína sem sáust á myndskeiði frá innbroti í svínabú Stjörnugríss hafa vakið óhug.
„Sem íbúi þessa lands þá brá mér, þetta er óhuggulegt að sjá. Og auðvitað sem ráðherra málaflokksins er ég að velta fyrir mér hvað sé til úrbóta, hvað er hægt að gera,“ segir Hanna Katrín.
„Matvælastofnun er með þetta til rannsóknar núna og ef sú rannsókn leiðir í ljós að lög um velferð hafi verið brotin hefur stofnunin víðtækar heimildir til að bregðast við því.“
Atvinnuvegaráðherra segir myndband frá innbroti í Stjörnugrís hafa vakið hjá sér óhug. Hún segir aðstæðurnar frávik en komi í ljós að lög hafi verið brotin verði við því brugðist.
Hanna Katrín segir ráðuneytið fylgjast með framvindu málsins. Þá vill hún taka fram að á þingmálaskrá sé frumvarp um endurskoðun laga um velferð dýra.
„Þau lög eru orðin yfir 10 ára gömul og það er full ástæða til að fara í slíka skoðun reglulega.“
Með reglugerð frá árinu 2014 var svínabændum gert að gera umfangsmiklar endurbætur, meðal annars á gotstíum. Bændur hafa endurtekna fresti til að gera úrbæturnar og styrki til þess.
Hanna Katrín segir endurbæturnar kosta mikla fjármuni og frestir til innleiðingar hafi almennt verið langir í Evrópu þó að þeir hafi verið í lengri kantinum hérlendis.
„Það var síðan framlengt aftur undir lok stjórnartíðar síðustu ríkisstjórnar til ársins 2028. En sú framlenging fól í sér þær kröfur á hendur svínabænda, eða þessara framleiðenda, að þeir sýndu þegar þeir sækja um frestinn til Matvælastofnunar fram á að þeir væru að vinna í því að bæta úr. Ef það tekst ekki eða hefur ekki tekist, þá er það vegna þess að það hafi verið einhverjar utanaðkomandi aðstæður,“ segir Hanna Katrín.
„Matvælastofnun er núna að yfirfara þetta og taka afstöðu til einstakra umsókna, hvort eigi að framlengja frestinn eða ekki.“
Er þetta eftirlit nógu virkt?
„Ég myndi telja að þetta sé virkt. Það er þannig að Matvælastofnun fer á þessa staði, hún skoðar þetta, hún fer yfir, hún vinnur þetta samkvæmt lögunum. Ef það er einhvers staðar pottur brotinn þá þarf að herða á því í lögunum.“
Hanna Katrín vill halda því til haga að Matvælastofnun hafi staðfest að aðstæðurnar sem sáust í myndbandi frá innbrotinu í Stjörnugrís séu undantekningartilvik.
„Það þýðir ekki að við eigum ekki að bregðast við þegar svona tilvik koma upp og það er verið að gera það.“
Hanna Katrín segir að ef skoðun Matvælastofnunar leiði í ljós að þarna hafi verið lög brotin sé ekki hægt að réttlæta aðstæðurnar.
