Sniglaræktun fer að hefjast í Reykholtsdal í Borgarfirði. Ræktendur hafa tröllatrú á verkefninu og stefna að útflutningi á sniglum. Mikil spenna er fyrir verkefninu sem umsjónarmenn þess hafa tröllatrú á. Þeir hyggja líka á útflutning á sniglum.
Nýlega voru nýsköpunarverkefni kynnt á Sviðinu í miðbæ Selfoss. Þetta var lokaviðburður Startup landsins svonefnda, viðskiptahraðals sem hefur verið í gangi síðustu sjö vikur og er sameiginlegur hraðall landshlutasamtaka sveitarfélaga um allt land.
Eitt af verkefnunum sem eru í bígerð er ræktun á sniglum á Hurðarbaki í Reykholtsdal í Borgarfirði. Sigríður Halldóra Gunnarsdóttir fer fyrir verkefninu og með henni í því eru pabbi hennar, Gunnar Bjarnason, og mágkona, Margrét Thorsteinsson.
„Sniglaræktun fer fram með því að fá þá til þess að verpa en þeir verpa í mold. Svo náum við þeim úr eggjunum, þau klekjast út og svo verður áframeldi. Svo stækka þeir bara og eftir því sem þeir verða stærri velur maður þá úr eftir gæðum og annað, þá eru þeir tilbúnir,” segir Sigríður Halldóra og bætir við að ræktun snigla til manneldis auki fjölbreytni í atvinnulífi og ýti undir vöxt og verðmætasköpun.
Snigillinn í allri sinni smæð sé ríkur af prótíni, járni, magnesíum og lífsnauðsynlegum amínósýrum.
En hvar verða sniglarnir ræktaðir?
„Við erum í Borgarfirði, staðsett þar í Reykholtsdal, á Hurðarbaki í Reykholtsdal. Maður byrjar alltaf smátt af því að við horfum fyrst og fremst á gæðin og rekjanleikann og við erum náttúrlega, eins og allir, mjög mikið að vinna að því beint frá býli. Og það er rosalega mikið af hótelum og veitingastöðum í Borgarfirði en við horfum líka til útflutnings,” segir Sigríður Halldóra.
Sniglarnir verða ræktaðir í klakhúsi þar sem hægt verður að stýra hita, rakastigi og birtu eins og best þykir.
En hvenær getur maður fengið að smakka á fyrstu sniglunum?
„Við þurfum að koma þeim fyrst til landsins og rækta þá, það verður vonandi bara sem fyrst,” segir Sigríður Halldóra.
