Rannsókn Lögreglunnar á Suðurnesjum á máli barns sem grunur er um að hafi verið þvingað í hjónaband er á viðkvæmu stigi. Lögregla veitir ekki upplýsingar um hvort barnið sé enn í umsjá barnaverndar eða hvort sakborningar séu á landinu.
Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði mann á þrítugsaldri og 15 ára gamla stúlku á við komu á Keflavíkurflugvelli í nóvember 2024. Maðurinn, faðir hans og frændi voru handteknir því þeir gátu ekki gefið fullnægjandi skýringar á ferðalaginu eða tengslum við stúlkuna.
Í skýrslutöku lýsti stúlkan því að foreldrar hennar hefðu gift hana manninum og hann haft við hana kynferðismök. Foreldrar stúlkunnar voru handteknir þegar þeir komu til landsins.
Guðmundur Sigurðsson, lögreglufulltrúi á Lögreglunni á Suðurnesjum, segir lögreglu hafa unnið mikið í málinu í samstarfi við erlend lögregluyfirvöld þegar það kom upp. Gagna hafi verið aflað og sakborningar og vitni yfirheyrð.
„Svona mál krefjast mikils tíma og samstarfs milli landa,“ segir Guðmundur,
Í fyrra hafi hægt á rannsókn málsins vegna metfjölda fíkniefnainnflutningsmála. Hann segir málið í rannsókn, lögregla enn að taka við gögnum og það eigi eftir að klára yfirheyrslur. Hann segir að vonir séu bundnar við að klára rannsóknina fljótlega.
Guðmundur vill ekki gefa upp hvaðan fólkið er, en í úrskurði Landsréttar sem felldi úr gildi farbannsúrskurð yfir föður stúlkunnar kom fram að barnabrúðkaup samkvæmt róma-sið væru einnig ólögleg í landinu þar sem athöfnin er talin hafa farið fram. Tekið skal fram að búið er að afmá þann hluta úrskurðarins sem nú er í birtingu.
Sakborningar í málinu eru sex og Guðmundur segir ekki hægt að veita upplýsingar um staðsetningu þeirra. Maðurinn sem er grunaður um mansal og kynferðisbrot gegn stúlkunni var búsettur á Íslandi þegar málið kom upp. Hinir sakborningarnir eru grunaðir um mansal.
Stúlkan var 15 ára þegar málið kom upp og var komið í hendur barnaverndar. Guðmundur segir málið viðkvæmt og ekki hægt að gefa upplýsingar um hagi stúlkunnar í dag.
