Rannsókn á tilraun til manndráps á lokametrunum

Gæsluvarðhald yfir karlmanni sem er grunaður um tilraun til manndráps hefur verið framlengt til 24. nóvember á grundvelli almannahagsmuna.

Maðurinn, sem er á fertugsaldri, er grunaður um að hafa veist að konu á fertugsaldri á heimili sínu við Engihjalla í Kópavogi í september. Konan var í lífshættu í kjölfar árásarinnar en var útskrifuð af gjörgæslu um mánaðamót september og október.

Ævar Pálmi Pálmason aðstoðaryfirlögregluþjónn segir rannsóknina á lokametrunum. Málið verði brátt sent til ákærusviðs. Lögregla telji sig vera með skýra mynd af því hvað hafi átt sér stað þetta kvöld. Greint var frá því í október að lögregla hefði lagt hald á stunguvopn sem hún taldi hafa verið beitt í árásinni.

Síðustu gögn sem lögregla hafi beðið eftir, svo sem læknisvottorð og gögn tengd áverkaskoðun, séu farin að týnast inn.