Réttlætir óviðeigandi hegðun dreifingu á kynferðislegu myndefni?

Það getur varðað við hegningar- og persónuverndarlög að dreifa stafrænu efni af fólki í aðstæðum sem ættu að vera einkamál óháð því hvort þeir sem á myndefninu séu hafi sýnt af sér óviðeigandi hegðun. Þetta segir María Rún Bjarnadóttir, sérfræðingur við lagadeild Háskólans í Reykjavík.

Myndefni af starfsfólki Hagaskóla í Reykjavík, þar sem það virðist eiga í ástaratlotum á bak við sandblásið gler, hefur gengið manna á milli í vikunni.

María kveðst ekki hafa séð myndefnið en hvetur fólk til að hugsa sig um áður en það deilir myndefni af einkalífi annarra. Hún segir aðstæður skipta máli.

„Það skiptir máli hvar svona hlutir eiga sér stað og auðvitað er ýmislegt viðeigandi inni á heimilum sem er ekki viðeigandi í skólastofu eða í skólabyggingu. Það liggur í augum uppi,“ segir María.

Hún segir óviðeigandi hegðun þó ekki réttlæta frekari óviðeigandi hegðun og alvarlegt ef börn og fullorðnir dreifi kynferðislegu myndefni.

„En það er auðvitað ástæða fyrir því að við erum með sakhæfisaldur og að fullorðnir geti verið látnir sæta refsiábyrgð fyrir hluti sem börn þyrftu ekki að sæta ábyrgð fyrir vegna þess að við gerum ákveðnar kröfur til fullorðinna sem við gerum ekki til barna.“

María segir fjárhagsvæðingu einkalífsins hafa fært mörkin á því sem fólki finnst eðlilegt.

„Ég held að með raunveruleikasjónvarpi og OnlyFans og bara þessari fjárhagsvæðingu einkalífs sem við erum að sjá heilt yfir í heiminum þá auðvitað getur það fært til mörkin á því hvað okkur finnst eðlilegt að sé einkamál og hvað sé ekki einkamál.“


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.