Sigurjón Þórðarson og eiginkona hans hafa rift samningi við konu sem keypti rúmlega helmingshlut í útgerðarfélagi þeirra. Konan keypti 50% hlut Sigurjóns og eins prósents hlut konu hans. Konan átti áfram 49% hlut í útgerðinni.
Morgunblaðið greinir frá því í dag að hjónin og konan sem keypti bátinn hafi komist að samkomulagi í mars um að rifta kaupunum. Þá var enn ekki búið að borga kaupverðið sem var samkvæmt kaupsamningi 255 þúsund krónur. Blaðið birtir mynd af samningi um riftun á vef sínum í dag.
Í frétt Morgunblaðsins er vísað til viðtals Vísis við Sigurjón í fyrra. Þar var haft eftir þingmanninum að hann áætlaði að hann myndi fá 16 til 18 milljónir fyrir sinn hlut. Það er 63-70 föld sú upphæð sem tilgreind er í riftunarsamningnum.
Umræða skapaðist um eign Sigurjóns í útgerðinni þar sem hann var á sama tíma formaður atvinnuveganefndar Alþingis. Nefndin fjallar meðal annars um lagaumhverfi útgerða landsins, þar á meðal þeirrar sem Sigurjón átti hluti í og hefur nú eignast á ný. Hann vísaði því á bug í viðtali við RÚV að eignarhluturinn hefði nokkur áhrif á störf sín.
