Sakar þingforseta um að hafa lekið fréttum af vistaskiptunum

Ingvar Þóroddsson, sem í gær gekk til liðs við Sjálfstæðisflokkinn úr Viðreisn, sakar forseta Alþingis um trúnaðarbrest. Fréttir af vistaskiptum hans hafi farið að kvissast út eftir að hann tilkynnti forseta um ákvörðun sína.

Ingvar kvaddi sér hljóðs í upphafi þingfundar í dag til að ræða málið. Sagði Ingvar að eftir fund hans með þingforseta í gærmorgun hafi fréttirnar af vistaskiptum hans farið að kvissast út. Því hafi hann ekki fengið tækifæri til að greina fólki frá vistaskiptunum í eigin persónu. „Sem gerði það að verkum að ég hafði ekki tök á að tala við fólk sem ég vildi að myndi frétta af þessu frá mér en ekki annars staðar frá. Mér þykir mjög miður yfir hvernig þetta atvikaðist.“

Nýir samherjar Ingvars í Sjálfstæðisflokknum tóku til máls í kjölfarið. Þeirra á meðal þingflokksformaðurinn Ólafur Adolfsson sem sagði málið grafalvarlegt. Vitnaði hann meðal annars í útvarpsviðtal við Pawel Bartoszek í Morgunútvarpi Rásar 2 sem upplýsti að formanni Viðreisnar hafi borist tíðindin þar sem hún var stödd á heimsþingi kvennaleiðtoga í Hörpu.

„Það er augljóst í mínum huga að hér hefur trúnaður forseta ekki haldið og ég hlýt að kalla eftir skýringum frá forseta og háttvirtum þingflokksformanni [Pawel Bartoszek] um hvernig þetta kemur til því að það er algerlega augljóst hér að það er grafalvarlegt mál ef ekki er hægt að treysta forseta fyrir upplýsingum eins og þessum,“ sagði Ólafur.