Samherjagátan 2019 til 2025: Skattgreiðslur 7,2 milljarðar

Skattgreiðslur til íslenska ríkisins vegna viðskipta systkinanna Baldvins og Kötlu Þorsteinsbarna með hlutabréf í útgerðarfélaginu Samherja á árunum 2019-2025 nema samtals um 7,2 milljörðum króna. Þetta kemur fram í svörum frá Baldvini Þorsteinssyni, forstjóra og öðrum stærsta hluthafa í Samherja, við spurningum fréttastofu um þessi viðskipti og skattgreiðslur vegna þeirra.

Viðskiptin með hlutabréf í Samherja hófust 2019 og eru við foreldra þeirra, Þorstein Má Baldvinsson og Helgu Steinunni Guðmundsdóttur. Segja má að viðskiptin hafi staðið yfir frá 2019 og fram á síðasta ár og hafa tekið miklum breytingum á þessum tíma.

Í fyrsta legg viðskiptanna árið 2019 var 43% hlutur í Samherja seldur Baldvini og Kötlu. Kaupverðið var nokkurn veginn bókfært verð hlutarins, 206 milljónir evra, tæplega 28 milljarðar króna á þeim tíma. Þá seldi eignarhaldsfélagi Steinn, í eigu Þorsteins Más og Helgu Steinunnar, eignarhaldsfélagi Baldvins og Kötlu þennan hlut með seljendaláni.

Um miðjan maí 2020 var sagt frá því að Katla og Baldvin væru orðin stærstu hluthafarnir í Samherja. Þetta gerðist eftir að Þorsteinn Már og Helga Steinunn seldu þeim systkinum að miklu leyti hlutabréf sín í Samherja. Á sama tíma seldu aðrir stærstu eigendur Samherja, hjónin Kristján Vilhelmsson og Kolbrún Ingólfsdóttir, börnum sínum hlutabréf sín í útgerðinni. Samherji sagði frá þessum viðskiptum á vefsíðu sinni. Í báðum þessum viðskiptum skipti samtals 84,5% hlutur í Samherja um eigendur.

Mikið var fjallað um þessi viðskipti í fjölmiðlum á þeim tíma. Síðastliðin ár hefur þeim verið haldið áfram í nokkrum liðum og þeim lauk ekki að mestu leyti fyrr en í fyrra.

Fjallað er um þessi áralöngu viðskipti og reynt að ná utan heildarsamhengi þeirra, meðal annars skattgreiðslur vegna þeirra, í fréttaskýringaþættinum Þetta helst. Þáttinn má hlusta á hér:Um miðjan maí vorið 2020 var sagt frá því að Katla og Baldvin Þorsteinsbörn væru orðin stærstu hluthafar í útgerðarrisanum Samherja. Mikið var fjallað um þessi viðskipti í fjölmiðlum og hafa þau verið kláruð í skrefum á síðustu árum.

Baldvin: Farið að lögum

Baldvin Þorsteinsson segir í svari til fréttastofu að viðskipti með hlutabréfin hafi öll farið fram samkvæmt lögum.

Orðrétt segir í svari Baldvins: „Þessi viðskipti hafa öll farið fram lögum samkvæmt á grundvelli skýrra lagaákvæða. Má um það m.a. vísa til ákvæða XIV. kafla laga nr. 2/1995, um hlutafélög, einkum 133. gr. þeirra laga; 52. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt og 4. gr. laga nr. 14/2004, um erfðafjárskatt.“

Fréttastofa spurði Baldvin framhaldsspurningar um samsetningu skattgreiðslnanna eftir að hann sagði frá heildarumfangi þeirra. Baldvin svaraði þeirri spurningu ekki sérstaklega.

Heildarfjárhæðin sem Baldvin nefnir sem skattgreiðslur, 7,2 milljarðar, stemmir við áætlanir Þetta helst um mögulegt skattspor viðskiptanna. Samkvæmt mati Þetta helst gætu þessar skattgreiðslur verið á bilinu 7-8,3 milljarðar króna.

Ef matið er rétt eru skattgreiðslurr vegna viðskiptanna að langmestu leyti erfðafjárskattur, sex milljarðar. Erfðafjárskattur er 10% af arfi. Þessar skattgreiðslur féllu til á árunum 2024 og 2025.

Restin af skattgreiðslunum vegna þessara viðskipta með Samherjabréfin er líklega skattur upp á milljarð af arði sem var greiddur út úr einu af eignarhaldsfélögunum sem tóku þátt í viðskiptunum árið 2024. Þetta er Eignarhaldsfélagið Steinn, félagið sem upphaflega seldi félagi Baldvins og Kötlu hlutabréfin í Samherja með seljendaláni árið 2019. Skattprósentan í þessum legg er 22%.

Um 300 milljónir króna hafa svo að öllum líkindum verið greiddar í tekjuskatt af starfsemi Steins á árunum 2022-2025 í tengslum við viðskiptin.

Bókfært verð og markaðsverð sjávarútvegsfyrirtækja

Árið 2020 snerist stór hluti umræðunnar um þessi viðskipti um undirliggjandi eignir, kvótann sem Samherji ræður yfir.

Lilja Rafney Magnúsdóttir, þáverandi þingkona Vinstri grænna, sagði til dæmis að eigendaskipti hlutabréfanna hjá Samherja endurspegluðu gallað kvótakerfi. Í ræðustól Alþingis sagði hún: „En sumargjafir Samherja til barnanna sinna eru kannski í stærri kantinum. Þær nema tugum milljarða króna í tilfærslu frá eigendum Samherja til afkomenda sinna. Þetta endurspeglar stórgallað kvótakerfið með óheftu framsali og samþjöppun til stórra fjármagnseigenda.“

Eins og margoft hefur komið fram í opinberri umræðu á Íslandi eru bókfærðar eignir íslenskra útgerðarfyrirtækja vanmetnar vegna þess að þær taka ekki mið af ætluðu markaðsvirði þessara fyrirtækja og eigna þeirra. Þannig er til dæmis bókfært virði kvóta miklu lægra en markaðsvirði hans. Kvótinn er stór hluti af bókfærðum eignum sjávarútvegsfyrirtækja á Íslandi.

Í einni úttekt frá árinu 2022 var bókfært verð aflaheimilda íslenskra útgerðarfyrirtækja talið vera um 1/3 hluti af markaðsvirði þeirra. Aflaheimildirnar voru bókfærðar á 405 milljarða króna en ætlað markaðsverð var um 1.200 milljarðar.

Til einföldunar má útskýra þetta þannig að ef kvóti sjávarútvegsfyrirtækis er bókfærður á einn milljarð þá er þetta villandi í þeim skilningi að fyrirtækið getur í reynd mögulega selt hann á þrjá milljarða.

Í þessum viðskiptum hér með hlutabréfin í Samherja var miðað við bókfært verð á hlutabréfunum, líkt og yfirleitt er gert í slíkum viðskiptum með hlutabréf í óskráðum félögum.

Verðmætin sem skiptu um eigendur þegar þessi nærri helmingshlutur í Samherja var seldur endurspegla því bara bókfært verð en ekki raunveruleg verðmæti, markaðsverðmæti hlutabréfanna. Skattgreiðslurnar í viðskiptunum byggjast sömuleiðis á bókfærðu verði, ekki ætluðu markaðsverði. Þetta er líka fullkomlega eðlilegt og lögum samkvæmt.

Áætlað markaðsverð hlutabréfa í Samherja kann að vera tvisvar til þrisvar sinnum hærra en bókfært verðmæti þeirra, meðal annars af því að kvótinn er ekki bókfærður á markaðsvirði.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.