Samkeppniseftirlitið samþykkir kaup Bláa lónsins á Arctic Adventures

Samkeppniseftirlitið hefur samþykkt kaup Bláa lónsins hf. á Arctic Adventures hf. án skilyrða. Gert er ráð fyrir að lokið verði við kaupin á næstu vikum og verður Arctic Adventures hluti af samstæðu Bláa lónsins í lok mánaðar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Forsvarsmenn Bláa lónsins og Arctic skrifuðu undir samkomulag um samruna fyrirtækjanna í júní.

Samkomulagið var gert með fyrirvara um áreiðanleikakönnun á báðum félögum, samþykki Samkeppniseftirlitsins og samþykki hluthafa. Nú hefur öllum fyrirvörum verið aflétt.

Markmiðið með kaupunum er að tryggja að Bláa lónið leiði áfram uppbyggingu og fjárfestingar sem staðsetja Ísland sem einn af fremstu upplifunar- og vellíðunaráfangastöðum heims, segir í tilkynningu.

„Spennandi tímar framundan“

„Það eru spennandi tímar fram undan. Við förum inn í Bláa lóns-samstæðuna með öfluga starfsemi víða um land, mikla sérþekkingu, sterka sölu- og rekstrarmenningu og síðast en ekki síst framúrskarandi starfsfólk. Með því að sameina ólíka styrkleika fyrirtækjanna skapast ný tækifæri til að þróa þjónustu og upplifanir, ná til fleiri gesta og styrkja stöðu Íslands sem áfangastaðar,“ segir Ásgeir Baldurs, forstjóri Arctic Adventures.

Fjöldi stöðugilda félaganna tveggja er um 1.100 og nam samanlögð velta þeirra 34,3 milljörðum króna á síðasta ári. Þar af 22,5 milljarðar hjá Bláa lóninu og 11,8 milljarðar hjá Arctic Adventures.

„Við erum með skýra sýn á hvernig við viljum vaxa á næstu árum, með því að efla kjarnastarfsemina, með þróunarverkefnum víða um land og með ytri vexti. Samruninn við Arctic Adventures er hluti af þeirri vegferð. Vörumerki félagsins fá áfram að dafna og við hlökkum til að vinna með starfsfólkinu,“ segir Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa lónsins.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.