Samtök sveitarfélaga í landbúnaði funda í Eyjafjarðarsveit

Samtök sveitarfélaga í landbúnaði voru stofnuð 7. október. Að samtökunum standa 26 sveitarfélög og þeim er ætlað að standa vörð um hagsmuni sveitarfélaganna og íbúa þeirra í greininni.

„Við erum að hittast í fyrsta skipti. Við erum að marka stefnu samtakanna sem okkur var falið sem stjórn, hvað við setjum á oddinn og svo framvegis. Það er að gríðarlega miklu að taka. Við teljum að landbúnaður eigi mikið inni og við viljum vinna að því núna,“ segir Jón Björn Hákonarson, formaður Samtaka sveitarfélaga í landbúnaði.

Landbúnaðurinn nær mikið víðar en bara til sveitanna

Stjórn samtakanna er í Eyjafjarðarsveit á fyrsta fundi sínum. Ýmis mál eru í brennidepli og eins og Jón Björn segir á að móta stefnu til næstu ára.

„Við höfum ýmsar áhyggjur, til dæmis af þessu jurtaostafrumvarpi. Þessari afturgöngu sem alltaf birtist. Hún hefur áhrif, ekki bara á bændur og framleiðslu á mjólk heldur líka afurðarstöðvar og samfélög sem byggja á vinnslu afurða.“

Jón segir líklegt að samtökin stækki á næstu mánuðum, 26 sveitarfélög eru í þeim núna en von sé á fleirum.

„Landbúnaðurinn okkar nær mikið víðar en í sveitunum. Hann tryggir vinnu og hann tryggir fæðuöryggi og við þurfum, sem samfélag, að hyggja að því.“


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.