Greiningum á COVID-19 hefur fækkað eftir mikla fjölgun í upphafi mánaðar. Í byrjun nóvember greindust 32 með COVID-19 og hafa greiningar ekki verið fleiri á einni viku í rúmlega tvö ár. Samkvæmt nýjum tölum frá landlækni greindust 25 með COVID-19 í liðinni viku, sem er þó töluvert fleiri en undanfarnar vikur.
Flest sýnin sem greindust jákvæð fyrir COVID-19 í byrjun mánaðar mátti rekja til hópsýkinga á deild Landspítalans. Flest þeirra sýna sem greindust jákvæð í liðinni viku komu einnig frá Landspítala en voru dreifð yfir spítalann og fleiri greindust á bráðadeildum en legudeildum, að því er segir á vef Embættis landlæknis.
Greiningum á öndunarfærasýkingum fjölgaði í síðustu viku, þá einna helst inflúensugreiningum. Þrjátíu greindust í liðinni viku og 27 vikuna þar á undan.
