Verð á matvöru hefur hækkað þótt margar matvöruverslanir hafi lækkað eða fryst verð á vörum.
Frá ágúst til nóvember hækkaði dagvöruvísitalan um 0,33%.
Hækkun á kjötverði, einkum nautakjöti, vegur þungt og skýrir meira en helminginn af hækkun vísitölunnar.
Fiskur, grænmeti og mjólkurvörur hafa einnig hækkað en verðlækkanir hafa hins vegar að mestu verið bundnar við innfluttar vörur.Dagvöruvísitalan heldur áfram að hækka. Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu gerir ráð fyrir því að gengisstyrking íslensku krónunar muni skila sér út í vöruverð.
Mikið af boðuðum lækkunum hafa skilað sér
Í september tilkynntu fyrirtækin Hagar, Krónan og Nettó að þau ætluðu að lækka eða frysta verð á sumum vörum til að sporna gegn verðbólgu og verja forsendur kjarasamninga.
Bjarki Steinn Benjamínsson, verkefnastjóri verðlagseftirlits ASÍ, segir niðurstöðurnar sýna að mikið af boðuðum lækkunum matvöruverslana hafi skilað sér.
„En að einhverju leyti líka hafa hækkanir komið. Innlend framleiðsla er að hækka mest en þessar innfluttu vörur eru að lækka á móti,“ segir Bjarki Steinn.
Mesta hækkunin mælist í Bónus, um 0,49% en 0,4% í Krónunni. Verðlag í Prís og Nettó stóð að mestu í stað – hækkaði um 0,06% í Prís og 0,02% í Nettó.
Prís var ein fárra verslana sem auglýsti ekki frystingu eða lækkun vöruverðs í haust.
Hægist á hækkunum
Þrátt fyrir hækkun dagvöruvísitölunnar hefur hægst á verðhækkunum samanborið við fyrsta ársfjórðung. Þá hækkaði vísitalan að jafnaði um 0,66% á mánuði.
Frá því í ágúst í fyrra hefur verð á lambakjöti og fuglakjöti hækkað um sex prósent og verð á ostum og smjöri um ríflega fjögur prósent.
Bjarki Steinn segir ljóst að matvöruverslanir séu að reyna að koma fram með átak til að sporna við verðbólguþróun og til að lækka vöruverð.
„. Af því við sjáum það alveg að það eru minni hækkanir núna en í byrjun árs. Og við vonum að það verði takturinn fram að áramótum og inn í næsta ár.“
Vonar að gengisstyrking skili sér út í vöruverð
Gengi íslensku krónunnar, sem var sterkt fyrir, hefur styrkst enn meira í sumar og haust. Miðað við launakostnað hefur raungengið aldrei verið hærra.
Það ætti alla jafna að geta skilað sér í lægra vöruverði á innfluttum vörum.
Frá áramótum nemur styrkingin um fimm prósentum og meira en helmingurinn hefur komið fram síðan í júlí.
Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, segist gera ráð fyrir því að gengisstyrkingin skili sér út í vöruverð.
„Verslunin hefur ekki endalaust svigrúm til að taka á sig þær hækkanir sem koma inn,“ segir Benedikt.
Hann segir að verðhækkanir á innlendum vörum eigi sér meðal annars skýringar í opinberum verðákvörðunum.
Takmörkuð samkeppni og ákvarðanir stjórnvalda hafa áhrif
Samkeppni á afurðamarkaði með mjólkur- og kjötvörur er takmörkuð, segir Benedikt.
Verðlagsnefnd búvara ákvað að heildsöluverð mjólkur og mjólkurvara skyldi hækkað um 1,42% frá og með 11. september.
Könnun ASÍ var gerð áður en þær hækkanir komu inn í verðlag.
Benedikt segir að verðhækkanir á grænmeti eigi sér líka sínar skýringar.
„Hvað grænmetið varðar þá sé þetta fyrst og fremst þessi árstíðabundna sveifla, þegar útiræktaða grænmetið og uppskera er að koma í hús. Þá taka við tímar hárrar tollverndar og auk þess sem að íslenska grænmetið hefur verið á örlítið hærra verði en innflutta grænmetið.“
