Segir öllum reglum fylgt og af og frá að leikrit sé sett á svið fyrir eftirlitsaðila

Geir Gunnar Geirsson, forstjóri Stjörnugríss og einn eigenda, segir af og frá að myndefni frá innbroti úr búi fyrirtækisins gefi rétta mynd af starfseminni. Umræða um að fyrirtækið setji á svið leikrit fyrir eftirlitsheimsóknir sé ekki á rökum reist. Fréttastofa fékk að heimsækja svínabúið í Brimnesi í dag.

Maðurinn, sem hefur játað að brjótast inn í búið, birti myndefni fyrir helgi þar sem ástand dýranna virðist bágborið og meðal annars mátti sjá dauða grísi. Geir segir myndirnar ljótar og ekki sýna rétta mynd af starfseminni.

Forstjóri Stjörnugríss segir öllum lögum og reglugerðum fylgt í rekstri svínabús fyrirtækisins. Myndefni sem maður, sem braust inn í búið, birti á dögunum séu ljótar og gefi ekki rétta mynd af starfseminni. Fréttastofa heimsótti búið í dag.

Hvernig er hægt að skýra það sem þarna sést, þarna eru dauðir grísir og særð dýr?
„Ég er ekki alveg á því að þarna séu særð dýr en þarna eru dauð dýr og það vill svo til að í allri framleiðslu fæðast andvana dýr en það er mjög lág tíðni af því hér í þessu búi og heilbrigði er mjög gott,“ segir Geir.

„En vissulega kemur það fyrir og eftir því sem menn reyna að leita að einhverju slæmu þá er von á því að hægt sé að draga upp hvaða mynd sem er en þetta er samt sem áður ekki það sem við teljum að þessi framleiðsla sýni eins og sést á myndunum í dag,“ segir Geir.

Forsvarsfólk Stjörnugríss sendi fréttastofu yfirlýsingu samhliða heimsókninni í búið í dag með ítarlegri upplýsingum um búið og hvernig eftirliti og umsjón með búinu er háttað.

Yfirlýsing frá forstjóra Stjörnugríss í heild

Svínabúið í Brimnesi
Brimnes er stofnræktarbú. Flutt er inn frosið sæði frá Noregi til að nýta besta erfðaefni sem völ er á hverju sinni, viðhalda svínastofninum og koma í veg fyrir úrkynjun.

Bústjórinn í Brimnesi hefur starfað við umönnun svína í meira en 25 ár. Hann sinnir starfi sínu af samviskusemi og alúð, líkt og aðrir starfsmenn svínabúa Stjörnugríss. Starfsfólk búanna þarf að hafa að minnsta kosti tveggja ára reynslu af umönnun svína, menntun á því sviði eða hvort tveggja.

Yfirbústjóri kemur á búið að minnsta kosti einu sinni í viku og fer yfir starfsemina. Þjónustudýralæknir kemur á tveggja vikna fresti, metur heilbrigði dýranna, fer yfir lyfjamál og veitir ráðgjöf eftir þörfum. Matvælastofnun tekur búið út í heild sinni einu sinni á ári. Erlendir sérfræðingar í dýralækningum og fóðurfræði hafa einnig komið á tveggja til þriggja ára fresti. Þeim heimsóknum hefur fækkað vegna aukinnar smithættu, meðal annars vegna svínapestar og mósasmits í Evrópu.

Við teljum fullyrðingar um að eftirliti sé ábótavant ekki standast skoðun. Eftirlit með framleiðslunni er umfangsmikið og reglubundið og að okkar mati meira en í öðrum búgreinum. Dýrunum er sinnt í átta til tíu klukkustundir á dag, alla daga ársins. Á búunum er virkt HACCP-gæðakerfi sem nær meðal annars til sóttvarna, sem eru mikilvægur þáttur í að tryggja velferð dýranna. Við skráum meðal annars lyfjagjöf, sjúkdóma, afföll, fóðurgjöf, þrif, sótthreinsun og viðhald. Heilbrigði dýranna er almennt gott og afföll lítil. Sýklalyfjanotkun í íslenskri svínarækt er með því minnsta sem þekkist í heiminum.

Við höfum hingað til takmarkað myndatökur á búunum, ekki síst til að gæta sóttvarna og hlífa dýrunum við óþarfa raski. Í umræðunni að undanförnu hefur að okkar mati verið dregin upp röng og óvægin mynd af starfseminni. Við höfum því ákveðið að gera undantekningu og heimila myndatökur í Brimnesi. Neytendur eiga rétt á að sjá með eigin augum hvernig maturinn þeirra er framleiddur og mynda sér skoðun á grundvelli þess sem þeir sjá og þeirra upplýsinga sem liggja fyrir. Mér er sérstaklega mikilvægt að starfsfólk búanna njóti sannmælis og að heiðarleiki þess og vinnubrögð séu metin á grundvelli staðreynda.

Undanfarna mánuði hefur mikið gengið á í rekstrinum og það hefur reynt á bæði dýr og starfsfólk. Brotist hefur verið inn í fyrirtækið að minnsta kosti fimm sinnum og líklega oftar. Innbrotin hafa bitnað verulega á velferð dýranna í Brimnesi. Þessu þarf að linna.

Í fréttaflutningi undanfarinna daga hefur meðal annars verið gefið í skyn að reksturinn skili svo miklum afgangi að við hefðum fyrir löngu getað lokið nauðsynlegum framkvæmdum. Við teljum þá umfjöllun gefa ósanngjarna mynd af félaginu. Til að meta stöðuna þarf að horfa til sögu þess og þeirra aðstæðna sem það hefur starfað við.

Markaðsaðstæður hafa breyst mikið á undanförnum árum og rekstur Stjörnugríss sömuleiðis. Áskoranir hafa verið miklar og fjárfestingar á síðustu árum hlaupa á milljörðum króna. Mikill innflutningur á síðustu 15 til 20 árum hefur sett mark sitt á rekstrarumhverfið. Fyrir um tíu árum hófum við því byggingu kjötvinnslu. Fram að því hafði starfsemin falist í svínarækt og rekstri sláturhúss. Kjötvinnslan hefur gengið vel og við teljum að hún hafi skilað neytendum góðri vöru á hagstæðu verði.

Við höfum bæði vilja og getu til að ráðast í þær framkvæmdir sem þarf til að uppfylla reglugerð um aðbúnað svína. Ég tók sjálfur þátt í að semja reglugerðina á sínum tíma og tel hana skref í rétta átt. Margt hefur þegar breyst til batnaðar. Við höfum meðal annars hætt geldingu svína og tekið upp lausagöngu gylta í fangstöðu. Enn á eftir að reisa ný hús sem uppfylla reglugerðina að fullu.

Við sóttum um byggingarleyfi árið 2019 til að uppfylla kröfurnar. Heimsfaraldurinn seinkaði áformunum og síðan hafa ýmsar hindranir tafið framkvæmdir enn frekar. Við höfum ítrekað komið áhyggjum af töfunum á framfæri við stjórnvöld. Óvissa hefur ríkt um skipulagsmál, umhverfismál og starfsleyfi á síðustu árum. Áður en ráðist er í framkvæmdir sem kosta milljarða þarf að liggja fyrir hvaða skilyrði gilda og hvaða leyfi fást.

Okkur hefur þótt umfjöllunin undanfarið óvægin. Það myndefni sem birt hefur verið er að okkar mati ekki lýsandi fyrir aðstæður og heilbrigði dýra á búinu. Við vonum þó að hún leiði til faglegrar og sanngjarnrar umræðu um velferð dýra og að neytendur fái betri innsýn í framleiðsluna. Skoðanir þeirra og kröfur skipta okkur máli.

Við berum ábyrgð á því að uppfylla þær reglur og kröfur sem gilda um starfsemina. Breytist þær kröfur er okkur ljúft og skylt að laga starfsemina að þeim. Neytendur eiga að hafa áhrif á hvernig maturinn þeirra er framleiddur og hvaða skilyrði framleiðslan þarf að uppfylla.

Ekki gripið til neinna ráðstafana áður en myndatökur voru leyfðar í búinu: „Ekki hægt að leikstýra svona búi“

Fréttastofa hefur ítrekað óskað eftir því að fá að mynda inni í búinu, bæði í vor og í haust, og fyrir helgi en leyfi fékkst ekki fyrr en í dag. Geir segir að með því hafi verið að hlífa dýrunum við óþarfa raski og til að gæta sóttvarna.

Var eitthvað gert hérna í búinu í millitíðinni?
„Það er ekki hægt að leikstýra svona búi. Þið sjáið hvernig dýrin líta út, þetta tekur langan tíma og öll umræða um að við séum að spila einhverja leiki fyrir heimsóknir eða eftirlitsaðilana það er ekki á rökum reist,“ segir Geir.

„Svona er bara framleiðslan eins og hún er, svona stundum við þessa framleiðslu. Fólk má hafa skoðanir á því og það er bara allt í lagi með það,“ segir Geir. Hann segir fyrirtækið ekkert hafa að fela.

Frávik vegna rými dýranna og halaklippinga

Í eftirlitsskýrslum MAST eftir heimsóknir í búið síðustu þrjú ár eru gerðar athugasemdir við rými dýranna og halaklippingar.

Slíkar athugasemdir eru þó ekki sértækar fyrir búið. Svínabú landsins eru almennt á undanþágu frá ákveðnum kröfum reglugerðarinnar, til 2028. Stjórnvöld veittu þann frest árið 2024 og vísuðu til þess að svínabændur skorti fjármagn til nauðsynlegra endurbóta.

Aðrar hindranir en fjárhagur komið í veg fyrir úrbætur og framkvæmdir

En rekstur Stjörnugríss hefur gengið vel. Fyrirtækið velti um sex og hálfum milljarði króna í fyrra og hagnaðist um ríflega 550 milljónir.

Geir segir fjárhag fyrirtækisins ekki standa í vegi fyrir úrbótum. Aðrar hindranir hafi komið í veg fyrir framkvæmdir.

„Í sambandi við hagnaðinn sem er svolítið dreginn úr samhengi, þetta snýst ekki um það,“ segir Geir.

„Þetta snýst um það að vilji okkar er fyrir hendi, geta okkar er fyrir hendi, metnaðurinn er fyrir hendi en við þurfum að geta framkvæmt og fá leyfi til þess. Þetta eru skipulagsmál, starfsleyfismál og umhverfismál. Það þarf að leysa þessi mál fyrst og við höfum verið iðin við það að reyna að finna lausnir á því með stjórnvöldum,“ segir Geir sem segist binda vonir við að leyfin fáist sem fyrst.

Rannsóknir hafa sýnt að svín eru greind dýr, sem geta leyst þrautir, eiga í samskiptum sín á milli og sýna merki um ótta, streitu, ánægju og forvitni – og geta, í náttúrulega umhverfi, verið mjög virk en upplifað streitu og leiða í þröngu rými og án afþreyingar.

Hvetur til umræðu um dýravelferð og segir að búið fylgi öllum reglum

Myndir þú telja að það sé gott fyrir dýrin til langs tíma, að búa við þessar aðstæður?
„Við fylgjum bara lögum og reglugerðum og því sem okkur er sett. Ef það koma aðrar kröfur þá munum við uppfylla þær en dýrunum líður ekki illa hér en vissulega má alltaf gera betur,“ segir Geir

„Dýravelferð á að ræða reglulega í samfélaginu og neytendur eiga að koma að því og lýsa því yfir hvað þeir vilja sjá, það er fullkomlega eðlilegt en vissulega má alltaf bæta allt.“


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.