Segir Stjörnugrís ljúga að fjölmiðlum

Einar Logi Pétursson, 25 ára karlmaður sem viðurkennt hefur innbrot í svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi, sakar fyrirtækið um að ljúga að fjölmiðlum í myndbandi sem hann hefur birt á samfélagsmiðlum.

Alls hefur Einar Logi birt tvö myndbönd eftir að hann viðurkenndi að hafa brotist inn í bú Stjörnugríss tvisvar, bæði í maí og svo aftur 2. september.

Hægt er að sjá myndband Einars Loga hér fyrir neðan. Varað er við efninu sem birtist í myndbandinu.25 ára karlmaður sem hefur viðurkennt tvö innbrot í svínabú fyrirtækisins Stjörnugríss sakar fyrirtækið um að ljúga að fjölmiðlum um ástand svína í búum sínum.

Í yfirlýsingu sem Stjörnugrís birti í gær var fyrra innbrot Einars Loga fordæmt sem dýraníð og sagt að það hafi valdið dýrunum hræðslu, óbætanlegum skaða og dauða.

Geir Gunnar Geirsson forstjóri Stjörnugríss sagði að myndir sem birtust í fyrra myndbandi Einars Loga gæfu mjög villandi mynd af starfseminni. Þá hafnaði hann þeirri mynd sem dregin væri upp með birtingu myndefnis án fullnægjandi samhengis.

Einar Logi sakar í seinna myndbandi sínu Stjörnugrís um lygar þar sem Geir Gunnar Geirsson, forstjóri fyrirtækisins, hafi sagt í viðtali við RÚV eftir fyrra innbrotið að dauðir grísir væru í búinu eftir nóttina. Hann fullyrðir að þeir grísir sem hann hafi fundið hafi verið dauðir þegar hann braust inn.

„Hann veit alveg að þessi svín voru dauð áður en ég mætti á staðinn en hann lýgur samt að fjölmiðlum út af því að hann vill ekki að almenningur viti hversu slæmt ástand er inni í þessum svínabúum,“ segir Einar Logi í myndbandinu.

Þá telur hann að dauði svína sé mjög algengur hjá búinu og bendir sérstaklega á ruslatunnu sem staðsett sé fyrir utan búið þar sem dauðum svínum sé komið fyrir.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.