Skemmdi tæplega 30 bíla í skjóli nætur

Á þriðja tug bíla, hið minnsta, er skemmdur eftir að maður eða hópur fólks gekk um á Seltjarnarnesi og braut bílrúður.

Bíleigendur uppgötvuðu skemmdirnar í morgun og Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar verknaðinn. Bílunum sem urðu fyrir barðinu á skemmdarvarginum hafði verið lagt við Kirkjubraut og Nesveg.

Unnar Már Ástþórsson aðalvarðstjóri segir að lögregla sé að reyna að ná utan um umfangið. Hann segir vitað til þess að tæplega 30 bílar hafi verið skemmdir.

Skemmdarvargurinn er óþekktur og reynir lögregla að afla upplýsinga sem varpað getað ljósi á hver var að verki. Meðal annars standa vonir til að ferðir mannsins hafi náðst á öryggismyndavélar. Unnar óskar aðstoðar frá fólki með slíkar vélar. „Við værum ákaflega þakklátir að fá það myndefni.“

Stutt er síðan fréttir bárust af því að skemmdir hefðu verið unnar á bílum í vestanverðri Reykjavík. Það voru mun færri bílar og skiptist það á nokkrar nætur. Unnar man eftir álíka dæmi og í nótt en segir að það gerist sjaldan að valdið sé skemmdum á svona mörgum bílum á afmörkuðu svæði á skömmum tíma.