Skipulögð brotastarfsemi þar sem erlend glæpagengi koma mjög við sögu er fyrirferðarmikil í löggæsluáætlun til næstu fimm ára, sem dómsmálaráðuneytið birti í liðinni viku. Stefán Sveinsson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglustjóranum á Suðurnesjum er sérfróður um þennan málaflokk og höfundur þess hluta áætlunarinnar sem að honum lýtur.
Hann segir umfang þessarar brotastarfsemi mikla, hér sem annars staðar. Í skýrslum og gögnum Europol og Evrópusambandsins komi fram að skipulögð glæpastarfsemi sé einhver mesta ógn sem steðji að vestrænum samfélögum og þar sé Ísland engin undantekning. Samkvæmt Ríkislögreglustjóra eru minnst 20 skipulagðir brotahópar hér á landi og skammt er síðan fréttir bárust af því að Ísland sé eitt sextán Evrópuríkja þar sem stærstu glæpasamtök Brasilíu, PCC, hafi verið að hasla sér völl að undanförnu.
Rætt var við Stefán í Speglinum í vikunni og hlusta má á ítarlegt viðtal við hann í spilaranum hér að neðan. Þar fyrir neðan er stiklað á stóru í því sem þar kemur fram.
Skipulögð brotastarfsemi er ein alvarlegasta ógnin við lýðræði og öryggi almennings á Vesturlöndum. Ný tækni og svokallaðar fjölþáttaógnir í skugga stríðsátaka gera hvorutveggja að auka vægi lögreglu og torvelda störf hennar. En hvað er til ráða?
Vinna með íslenskum glæpahópum, vændi, fíkniefni og peningaþvætti gegnumgangandi þráður
Stefán segir erlenda brotahópa hér vinna þvert á þjóðerni, hér sé mun meira um að erlend glæpagengi eigi í samstarfi við íslenska brotamenn og -hópa en víðast hvar erlendis. Þetta séu vissulega að mörgu leyti ólíkir hópar, en þeir eigi það þó flestir sameiginlegt að fást við fleiri en eina tegun brota. Öll þessi brot eigi það svo sameiginlegt að þau færi þeim fjármuni. Þá fjármuni þurfi að þvætta, og því fylgi þessu alltaf peningaþvætti.
Vændi og fíkniefnasmygl og -sala eru mjög stór þáttur í starfsemi flestra eða allra þessara hópa, en þeir senda líka hingað hópa fólks til innbrota, vasaþjófnaðar og búðahnupls, svo eitthvað sé nefnt.
MIkið fjármagn í öryggismál en hvað með lögregluna?
Til að fela gróðaslóðina eru margir þessara hópa með puttana í lögmætum rekstri hér á landi, segir Stefán. Rannsókn á peningaþvætti sé hins vegar flókin og tímafrek og kalli á hvorutveggja meiri mannskap og fjármagn en nú er lagt í málaflokkinn.
Stefán segir að ýmislegt sé nú þegar búið að gera til að efla varnir gegn skipulagðri brotastarfsemi hér. Fleira þurfi þó til og fleira sé í pípunum, þar á meðal ýmsar lagabreytingar og fjölgun lögreglumanna um 200 á næstu fjórum árum.
Undanfarin ár hefur aftur á móti verið lögð meiri áhersla á og mikið fjármagn í það sem kallað er öryggismál, einkum vegna árásarstríðs Rússa í Úkraínu og þrýstings frá Bandaríkjunum og NATO. Ógna að utan, sem sagt. En hvað með lögregluna? Hún er jú og hefur alltaf verið í framlínunni þegar kemur að vörnum hér heima, hefur hún setið eftir?
Stefán vill hvorki segja af né á um það en segir lögregluna þó vissulega alltaf geta notað meira fé og meiri mannskap.
Lögregla mikilvægari þjóðaröryggi en áður
Í inngangi löggæsluáætlunarinnar segir meðal annars: „Staða öryggismála í heiminum hefur breyst mikið undanfarin ár og ógn við fullveldi ríkja og hætta á hernaðarátökum er raunveruleg. Ísland líkt og önnur ríki stendur frammi fyrir síbreytilegum ógnum sem beinast að samfélagsinnviðum, lýðræðislegum ferlum og öryggi almennings og hafa breytt þeim mörkum sem áður lágu milli almennrar löggæslu og þjóðaröryggis.“
Enn fremur segir að hlutverk lögreglu í tengslum við þjóðaröryggi hafi fengið aukið vægi í ljósi þessa breytta öryggisumhverfis og fjölþættari ógna – við hvað er átt? Hefur lögregla ekki alltaf verið framvarðasveit á þessu sviði hér, ásamt mögulega landhelgisgæslunni? Eða hefur vægi lögreglu aukist einfaldlega í þeim skilningi að við höfum meiri þörf fyrir öfluga lögreglu en áður, vegna þess að glæpir og ógnir eru alvarlegri í dag en þeir hafa verið?
Einnig er talað um að skipulögð brotastarfsemi grafi undan grunnstoðum samfélagsins, efnahagskerfinu, öryggi borgara og trausti til yfirvalda, löggæslu og dómskerfis. Ekki er torskilið hvað átt er við með fyrri hlutanum, en með hvaða hætti grefur þessi starfsemi helst undan trausti til yfirvalda, löggæslu og dómskerfis? Finnur lögregla fyrir því að fólk gruni hana eða dómskerfið um spillingu – eða er það kannski frekar ótti við að lögreglan og dómskerfið ráði ekki við þessa hópa?
Svör Stefáns við þessum spurningum og öðrum má heyra í spilaranum hér ofar í færslunni.
