Smáþjóðir og Evrópa þurfa að endurskilgreina gervigreindarkapphlaupið

Katrín Jakobsdóttir fyrrum forsætisráðherra og stjórnarformaður Gervigreindarmiðstöðvar Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna, segir að gervigreindarkapphlaup Bandaríkjanna og Kína og viðskiptamiðuð nálgun þjóðanna ógni heimsskipaninni. Eistneska ríkisútvarpið greinir frá. Katrín var í heimsókn í Eistlandi í vikunni þar sem hún hvatti smærri þjóðir til að beita sér fyrir mannréttindum og siðferði í umræðunni um gervigreind.

Í viðtali við eistneska ríkisútvarpið sagði Katrín að Bandaríkin og Kína væru í kapphlaupi um gervigreind sem stórveldin skilgreindu sjálf og væru að keppa sín á milli á eigin forsendum.

Hún segir að smáþjóðir og Evrópa þurfi að endurskilgreina þetta kapphlaup og meta hvernig gervigreind sé nýtt og einnig hvenær og hvenær ekki. Ræða þurfi stefnu um gervigreind, það væri ekki nóg að setja reglur. Gervigreindin væri mikil menningarbreyting og það þyrfti opnari umræðu innan samfélaga og á milli þeirra um hvernig eigi að nýta tæknina.

Hægt að nýta gervigreind í þágu almannaheilla

Gervigreindarmiðstöð Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna var stofnuð á síðasta ári. Markmið miðstöðvarinnar er að efla samstarf, hraða upptöku gervigreindar og styrkja samkeppnishæfni svæðisins í alþjóðlegu samhengi.

Katrín segist hafa fulla trú á því að Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin gætu komið sér saman um hvernig hægt væri að nýta gervigreind í þágu almannaheilla, jafnframt því að standa vörð um lýðræði, mannréttindi og taka á siðferðislegum álitamálum.

Segir umræðu um gagnaver að aukast á Íslandi

Katrín var einnig spurð út í gagnaver og uppbyggingu þeirra á Íslandi. Hún sagði að Ísland byggi yfir endurnýjanlegri orku og gagnaver væru ekki í þéttbýli á Íslandi heldur á strjábýlum svæðum. En umræðan væri að aukast á Íslandi um hversu mörg gagnaver við ættum að hafa og hversu stóran hluta orkunnar ættu gagnaverin að nýta.

Hún sagði að þetta væri ekki auðveld ákvörðun því þótt Íslendingar byggju yfir endanlegri orku fæli nýting hennar í sér að ósnortinni náttúru og óbyggðum væri spillt.