Snjókomu spáð víða

Með morgninum verður suðvestan kaldi eða strekkingur með snjókomu vestantil á landinu. Austantil verður hægari vindur og þurrt að kalla.

Þetta kemur fram í pistli veðurfræðings Veðurstofu Íslands.

Það hlýnar og síðdegis verður úrkoman að mestu rigning eða slydda á láglendi. Fyrir austan verður lítilsháttar snjókoma.

Grunnt lægðardrag á Grænlandssundi dýpkar og færist austur í dag. Á morgun verður því komin kröpp lægð skammt norður af landinu.

Hún veldur hvassviðri og ofankomu þegar hún þokast suður og annað kvöld gengur í norðan stórhríð. Sunnan- og austanlands verður hægari vindur og úrkomulítið.

Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu til miðnættis annað kvöld:

Suðlæg átt, 3-10 m/s og dálítil snjókoma eða slydda, en vestlægari og rigning síðdegis og hlýnar heldur. Hiti 2 til 5 stig í kvöld. Norðan 8-13 á morgun, skýjað með köflum og þurrt að kalla. Frost 1 til 4 stig. Gengur í norðvestan 13-18 með snjókomu annað kvöld.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.