Sala á jólabjór Tuborg hófst í kvöld, sem er orðinn hluti af jólaundirbúningi margra. J-dagurinn, sem er stytting á julebryg dag, eða „jólabjórsdagur“ á íslensku, er vinsæl hefð í Danmörku en er einnig haldinn hátíðlegur á Íslandi og víðar.
„Þetta er um það bil fimmtánda árið sem við erum að gera þetta og þetta hefur bara verið að stækka og stækka í gegnum árin og fólk tekur alltaf betur og betur í jólabjórinn,“ segir Baldur Búi Heimisson, rekstrarstjóri á Dönsku kránni.
Baldur segir að hann eigi von á nokkur þúsund manns í götunni við krána þegar snjórinn fellur, sem þýðir að byrja megi sölu á jólabjórnum. Snjórinn fellur klukkan 20:59 á fyrsta föstudegi í nóvember á hverju ári.
