Kristín María Birgisdóttir, Grindvíkingur, segir endurkaupaáætlun Þórkötlu ekki taka tillit til ólíkra aðstæðna Grindvíkinga. Fasteignafélagið Þórkatla kynnti í gær endurkaupaáætlun þar sem Grindvíkingum býðst að kaupa til baka fasteignir sem félagið keypti eftir að bærinn var rýmdur vegna eldsumbrota.
„Það er enginn að biðja um að fá eitthvað frítt en við viljum byggja upp það samfélag. Við viljum fá að vera þarna og staðan okkar er ólík eftir því hvort við keyptum, hvort við eigum fasteignir annars staðar, hvort við vorum að leigja,“ segir Kristín.Fasteignafélagið Þórkatla kynnti í gær endurkaupaáætlun og býðst Grindvíkingum að kaupa aftur fasteignir sem félagið keypti af íbúum. Grindvíkingur segir að líta þurfi á málið öðrum augum, málið snúist um endurreisn en ekki fasteignaviðskipti.
Pétur Markan bæjarstjóri Grindavíkur segir að horfa þurfi í aðstæður Grindvíkinga sem eru brottfluttir en vilja máta sig í samfélaginu á ný. Þá þurfi að leita nýrra leiða, morgunljóst sé að Grindvíkingar beri ekki traust til Þórkötlu, það hafi orðið skýrt eftir fundinn í gær.
Kristín telur ljóst að það sé engin ein ríkisleið sem virki fyrir alla, mikilvægt sé að mæta fólki þar sem það er. Líta þurfi málið öðrum augum, málið snúist um endurreisn bæjarfélags ekki fasteignaviðskipti.
„Þetta snýst um það að greiða leið þeirra heim sem vilja virkilega koma heim og vera þar, sko. Grindavík er ekkert bara að byggjast upp á fólki sem er að flytja til baka, hún er að byggjast upp á íbúum sem hafa keypt sér annars staðar en vilja taka þátt í uppbyggingunni.“
