Víðtækar truflanir urðu í forritum Microsoft um allan heim fyrir helgi. Áhrifin vörðu í um sólarhring og milljónir komust ekki í tölvupóst og forrit sem eru mikið notuð við skrifstofustörf. Truflanirnar urðu því innlegg í umræðu um stafrænt fullveldi sem kastljósið hefur verið á síðustu misseri. Samskipti þjóða eru að breytast og spurt er um mikil áhrif stórra tæknifyrirtækja.
Í fréttaskýringaþættinum Þetta helst var sjónum beint að stafrænu fullveldi þjóðar á tímum þegar landsmenn, stofnanir, fyrirtæki og stjórnvöld reiða sig mjög á erlenda tæknirisa í leik og starfi.Dósent í tölvunarfræði segir að þróun í átt að stafrænu fullveldi sé hluti af sjálfstæðisbaráttu nútímans. Hann telur Ísland mjög háð Bandaríkjunum um stafræna innviði og æskilegt að skoða bæði innlenda þróun og opinn hugbúnað.
Bára Hlynsdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur og verkefnastjóri hjá öryggisfyrirtækinu Syndis, sagði í Vikulokunum um helgina að truflanirnar hjá Microsoft hefðu verið áminning fyrir fyrirtæki og stofnanir um að vera með viðbragsáætlanir fyrir ómissandi kerfi. „Verðum við að setja öll eggin okkar í sömu körfuna? Erum við háð einum stórum risabirgi sem er kannski á vesturströnd eða austurströnd Bandaríkjanna? Það er ákveðin áhætta.“
Þá benti Bára á að bilunin hefði til að mynda ekki haft víðtæk áhrif í Kína þar sem Kínverjar hefðu byggt upp sína eigin tækniinnviði sem séu óháðir Microsoft. Það væri þó ekki endilega rökrétt lausn fyrir Ísland vegna fámennis.
Stafrænt fullveldi skiptir miklu máli
Hafsteinn Einarsson, dósent í tölvunarfræði við Háskóla Íslands, segir að stafrænt fullveldi sé ekki formlega skilgreint af Alþingi þótt það sé í þjóðaröryggisstefnu Íslands, „en svona almennur skilningur á stafrænu fullveldi er að við ráðum sjálf yfir okkar gögnum, okkar kerfum, tækni, eða að við eigum einhvers konar varaleið ef einhver eins og Microsoft myndi bregðast okkur eða eitthvert erlent ríki myndi kannski loka á okkur. Ef Bandaríkin myndu loka á Evrópu og þar með talið Ísland þá væri það algjör katastrófa að allt í einu komast ekki í tölvupóst eða alls konar hugbúnað,“ segir Hafsteinn.
„Þá erum við kannski að sjá að svona stafrænt fullveldi skiptir okkur rosalega miklu máli. Þetta er kannski eitthvað sem mætti kalla hluta af sjálfstæðisbaráttu nútímans, að vera fullvalda í þeim skilningi að við ráðum yfir okkar stafrænu innviðum.“
Hann bendir á að Þjóðverjar og Frakkar hafi nýlega stigið skref í þessa átt, þróað hugbúnað sem kemur í stað algengra bandarískra forrita. Ekki sé verið að smíða hugbúnað frá grunni heldur nýta svokallaðan opinn hugbúnað, „en það er kannski eitthvað líka sem er að fara að breytast með gervigreindinni, að það er rosa auðvelt að smíða hugbúnað frá grunni. Þannig að ríki eru kannski farin að hugsa um að breyta stefnu sinni að því leyti að þau eru sjálf meira farin að þróa hugbúnað en þá fer maður kannski að hugsa líka hversu öruggur er sá hugbúnaður,“ segir Hafsteinn.
„Kostnaðurinn við alla þróun hefur lækkað svo svakalega, bara á þessu ári, út af gervigreind að ríki ættu að fara að endurskoða svona stefnur. Þau þurfa að fara að gera kostnaðarmat á þessu, hvað kostar að þróa hugbúnað frá grunni, hvað kostar að reka opinn hugbúnað og þá er kannski markmiðið ekkert endilega að skipta út öllu fyrir opinn hugbúnað, stafrænt fullveldi þýðir ekkert endilega að við ætlum að skipta öllu út. Markmiðið er kannski frekar að eiga þessa varaleið.“
Stafrænt fullveldi í þjóðaröryggisstefnu Íslands
Hafsteinn bendir á að hluti af íslenskum kerfum sé rekinn hér á landi á heimasmíðuðum hugbúnaði. Þar megi meðal annars líta á ákveðna stafræna innviði í heilbrigðiskerfinu, „en síðan er ýmislegt annað eins og til dæmis að við erum háð Microsoft að mjög stórum hluta, stór hluti tölvupósts ríkisins og Ísland.is notar Amazon sem er rekið á vefþjónum í Evrópu. Við erum mjög háð Bandaríkjunum,“ segir hann.
Þjóðaröryggisstefna var samþykkt á Alþingi 2016 og í uppfærslu á henni 2023 var það nefnt sem sérstakt markmið að efla stafrænt fullveldi og auka net- og upplýsingaöryggi á öllum sviðum samfélagsins með samhæfðum aðgerðum, áframhaldandi uppbyggingu á eigin getu og samstarfi við önnur ríki.
Þess má geta að Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þá þingmaður, spurði ráðherra um stafrænt fullveldi ráðuneyta á þingi í vor. Ef litið er til að mynda á svör fjármála- og efnahagsráðuneytisins um stofnanir þess þá eru notuð 23 kerfi og hugbúnaður sem tengist upplýsingatækni. Þrettán þeirra eru í gegnum fyrirtæki með höfuðstöðvar í Bandaríkjunum, fimm annars staðar á Norðurlöndunum og þrjú á Íslandi. Almennt eru gögn ráðuneyta þó vistuð hér á landi eða innan EES.
Vill horfa til samstarfs við Norðurlöndin
Rætt var um stafrænt fullveldi á vettvangi Norðurlandaráðs í haust. Dagbjört Hákonardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, var meðal norrænna þingmanna sem lögðu þar fram tillögu um aukið stafrænt fullveldi og samstarf Norðurlandanna í þá átt. „Við stöndum á svipuðum slóðum og nágrannaþjóðir okkar. Við erum að vakna til lífsins í því að átta okkur á því hversu gríðarlega mikilvægt þetta er,“ segir Dagbjört.
„Fjölþáttaógnir heimsins sem birtast okkur í því að það er ráðist á tæknilega innviði gera þessa staði kannski ekki jafn trygga og við héldum að þeir væru. Þess vegna er mikilvægt fyrir íslensk stjórnvöld og nágrannalönd okkar að taka höndum saman, búa til vettvang, eða einhvers konar öruggari gagnavistunarstað, sem stendur af sér ógnir,“ segir hún.
„Við gerum ekkert ein. Ekkert af þessu kalíberi getum við gert á eigin spýtur. Við getum vissulega verið með staðbundinn gagnagrunn sem hefur að geyma mestar upplýsingar en eins og þið vitið er margt sem flæðir yfir landamæri. Norðurlöndin, í samstarfi við Eystrasaltsríkin, hafa sett sér markmið um það að kanna fýsileika þess að koma þessum málum í svo gott sem sömu sæng.“
„Alls ekkert galið“ að skoða innlenda þróun
Hafsteinn vonar að stjórnvöld á Íslandi verði búin að kortleggja viðkvæma stafræna innviði á næstu árum, gera áætlanir og fylgja þeim eftir, „annað hvort fara að skipta um þjónustuaðila og fara þá meira í innlenda þróun og ég held að það sé alls ekkert galið að fara að skoða það, eða við erum þá farin að innleiða opinn hugbúnað einmitt í þessum viðkvæmustu kerfum,“ segir hann.
„Þannig að ef allt í einu einhver þjóð ákveður að loka á okkur, segjum að Bandaríkin allt í einu ákveði að loka á okkur, þá eigum við einhverja aðra möguleika. Við erum ekki alfarið háð einhverri annarri þjóð og við erum fullvalda í þessum skilningi,“ segir Hafsteinn.
Nánar var rætt við Hafstein, Dagbjörtu og Guðmund Hálfdanarson, prófessor emeritus í sagnfræði, um stafrænt fullveldi í Þetta helst.
