„Stofnunin mun ekki horfa fram hjá ef brotið hefur verið á dýrum“

„Rannsaka þarf nánar það sem kemur fram á myndbandinu, sömuleiðis hvort þetta sé mögulega afleiðing af innbrotinu. Stofnunin mun ekki horfa fram hjá ef brotið hefur verið á dýrum.“

Þetta segir í tilkynningu frá Matvælastofnun (MAST). Þar bregst stofnunin við myndbandi sem Einar Logi Pétursson birti af innbrotinu inn í húsnæði Stjörnugríss á Kjalarnesi á Instagram.

Í myndskeiðinu sjást dýr með sár, dauðir grislingar og gylta að gjóta.

MAST segir að þekkt sé að utanaðkomandi streita geti valdið ótímabæru goti. „Stofnunin var upplýst um fósturmissi og að fæðing hafi farið af stað hjá nokkrum gyltum í tengslum við innbrotið.“

Stofnunin leggur áherslu á að aðgerðir og aðferðir þeirra sem telja að brotið sé á dýrum valdi eða auki þjáningar þeirra.

„Í tilfelli innbrots á gyltubú í tvígang ollu því miður aðgerðir viðkomandi við að hleypa dýrum úr stíum sínum því að fjöldi dýra bæði slösuðust og drápust. Það er aldrei réttlætanlegt.“

MAST segir mikilvægt að stofnuninni berist ábendingar um ef aðbúnaður eða umhirða er talin vera með þeim hætti að það brjóti á velferð dýranna.

„Ábendingar um brot á velferð dýra eru ávallt teknar mjög alvarlega og [þeim] strax fylgt eftir með rannsókn máls og kröfum til umráðamanns dýra um úrbætur ef sannar reynast.“

Fréttin verður uppfærð.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.