Stórum trans fána flaggað af efstu hæð Landspítala

Stór trans fáni var hengdur fram af svölum á 14. hæð Landspítalans í Fossvogi síðdegis. Gjörningurinn var ekki á vegum spítalans.

Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum fjarlægðu öryggisverðir spítalans fánann þegar þeir urðu hans varir. Forsvarsfólki spítalans var ekki kunnugt um hver stóð að atvikinu.

Í dag er alþjóðlegur minningardagur trans fólks. Háskóli Íslands er meðal stofnana sem flagga trans fánanum í tilefni dagsins.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.