Sumir kaupa mikið og aðrir ekki neitt

Stjörnuspár og snyrtivörur, ökukennsla, föt og skór, jóga- og jólavörur – það er fátt sem ekki er á afsláttarverði í dag – á degi einhleypra.

En afslættirnir eru ekki alltaf allir þar sem þeir eru séðir, segir Þórunn Anna Árnadóttir forstjóri Neytendastofu.Í dag er dagur einhleypra – einn af stóru afsláttardögum ársins. Neytendastofa fylgist með hvort verslanir hækki verð til þess eins að geta lækkað það á stórum afsláttardögum.

Fá ábendingar um að verð hafi verið hækkað fyrir afsláttardag

„Það er allur gangur á því og við fáum alltaf ábendingar um að vara hafi ekki verið seld á því fyrra verði sem er auglýst,“ segir Þórunn.

Neytendastofa skoðar slíkar ábendingar og sé niðurstaðan sú að verð vöru hafi verið hækkað skömmu fyrir afsláttardag eru við því viðurlög.

„Þá bönnum við þessa viðskiptahætti, að vera að auglýsa afslætti sem eru ekki raunverulegir og við getum þá jafnvel sektað, sé ástæða til.“

Slíkar sektir geta numið milljónum.

„Á þessum dögum erum við líka að fylgjast með því sem við getum,“ segir Þórunn. „En það er algerlega ómögulegt að fylgjast með öllum afsláttum sem eru.“

Hafið þið fengið einhverjar ábendingar núna, fyrir þennan tiltekna afsláttardag? „Já. Við erum búin að fá eitthvað af ábendingum.“

Sumir nýta sér afsláttardaga – aðrir ekki

Allur gangur var á því hvort vegfarendur sem fréttastofa tók tali hugðust nýta sér tilboðin sem boðið var upp á í dag.

Til dæmis ætlaði Högni Þór Þorsteinsson ekki að kaupa neitt, en Stefanía Unnarsdóttir keypti næstum því allar jólagjafirnar.

Sá fyrsti af þremur

Dagurinn í dag er fyrstur í röðinni af stóru afsláttardögunum í nóvember, hinir eru svarti föstudagurinn 27. nóvember og netmánudagurinn 30. nóvember.

Þá má búast við viðlíka afsláttarkjörum og boðið var upp á í dag.

Hvetja til nægjusemi

Landvernd hvetur fólk til að skrá sig í átakið Nægjusamur nóvember til að sporna gegn neyslu og hvetja til nægjusemi.

„Nóvember er neysluríkasti mánuður ársins,“ segir Ragnhildur Katla Jónsdóttir upplýsingafulltrúi Landverndar.

„Það er ótrúlegt hvað við kaupum og kaupum, hvað það flæðir mikið af dóti inn á heimilin. Sem oftar en ekki endar svo á að fara í ruslið.“

En er ekki gott að fólk skuli bíða átekta og versla þegar afslættir eru í boði? „Jú og Nægjusamur nóvember er ekki til að banna kaup yfir höfuð. Banna vel úthugsuð og þörf kaup. Alls ekki, því það er ýmislegt sem okkur vantar.“En það hefur enginn sparað á því að kaupa eitthvað sem hann þarf ekki.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.