Sveitarfélög keppast við að gagnrýna Loftbrú þvert á flokka

Það er útlit fyrir að flokkslínur nái ekki utan um breytingar á Loftbrú ef marka má andstöðu sveitarfélaga á landsbyggðinni. Viðreisn fékk 10 fulltrúa í sveitarstjórnum í kosningum í vor, Flokkur fólksins engan og Samfylkingin 38 af þeim 453 sem kosið var um.

Bæði á Akureyri og Fjarðarbyggð, þar sem Samfylkingin á tvo fulltrúa í hvorri bæjarstjórn, hefur nýtt fyrirkomulag verið harðlega gagnrýnt.

„Bæjarstjórn var algjörlega samhljóða í bókun sinni þar sem er kallað eftir því að ráðherra endurskoði þessa ákvörðun. Eins og ég segi, þetta er mjög mikilvægt tæki sem við treystum á, við sem búum hér á landsbyggðinni,“ segir Sindri Kristjánsson, oddviti Samfylkingarinnar á Akureyri en bærinn er meðal sex sveitarfélaga á Norður- og Austurlandi sem hafa gagnrýnt fyrirhugaðar breytingar.

Hann segir ákvörðun sína um að vera á móti breytingum á Loftbrú ekki hafa verið erfiða, hann styðji ríkisstjórnina í að ná tökum á ríkisfjármálum sem muni hagnast sveitarfélögunum gríðarlega.

„Ég legg bara það mat á þetta tiltekna mál, á þessa tillögu að breytingu á Loftbrúnni að þarna sé kannski verið að ganga á okkar hlut. Ég er samt ekki sammála því að það sé einhver almenn lína að sunnan að ganga á landsbyggðina.“

Þá hefur Fjórðungssamband Vestfirðinga kallað eftir óskertum framlögum til Loftbrúar enda kerfi sem hefur sannað gildi sitt. Formaður sambandsins er Gylfi Ólafsson, frá Viðreisn og bæjarstjóri á Ísafirði.