Sýknaður af ákæru um manndráp af gáleysi á Lækjargötu

Maður var í dag sýknaður af ákæru um manndráp af gáleysi eftir að hafa ekið skotbómulyftara á aðra bifreið á horni Lækjargötu og Vonarstrætis árið 2023.

Maðurinn ók lyftaranum undir áhrifum slævandi lyfja og var með gaffla vinnuvélarinnar í 70 sentimetra hæð þegar áreksturinn varð. Samkvæmt skýrslu rannsóknarnefndar samgönguslysa voru báðir ökumenn undir áhrifum lyfja. Í skýrslunni kom einnig fram að vinnuvélin hefði verið óskráð og óheimilt að aka henni í almennri umferð. Meginorsök slyssins var þó talin sú að Marek hefði verið undir áhrifum fíkniefna og óhæfur til aksturs.

Dómurinn hefur ekki enn verið birtur og því ekki hægt að segja til um ástæður hans.

Gagnrýni á framgang rannsóknar

Maðurinn sem lést hét Marek Dementiuk og var 37 ára gamall og lét eftir sig eiginkonu og þrjú börn.

Fréttastofa ræddi við ekkju mannsins í desember, þar sem hún gagnrýndi seinagang rannsóknarinnar.

Atvikið átti sér stað 2023 en rannsókn lauk ekki fyrr en 2025.

Marek ók sendibifreið þegar lyftaranum var ekið út á götuna og ýttust gafflar hans skyndilega upp þegar hinn ákærði ýtti óafvitandi á stýripinna. Gafflarnir fóru inn í sendibílinn og lést Marek samstundis.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.