Tafir á umferð eftir þriggja bíla árekstur í Garðabæ

Þriggja bíla árekstur varð á gatnamótum Vífilsstaðavegar og Hafnarfjarðarvegar í Garðabæ í kvöld. Engin slys urðu á fólki. Þetta staðfestir Sigurjón Hendriksson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Gatnamótin eru skammt frá Hagkaup í Garðabæ og Olís við Hafnarfjarðarveg.

Sigurjón segir dælubíl og sjúkrabíl hafa verið senda á vettvang. Slökkviliðið sé enn á vettvangi og verði þar áfram meðan á hreinsun stendur og þar til bílarnir hafi verið fjarlægðir. Hann gerir ráð fyrir því að það geti tekið á bilinu 45-60 mínútur til viðbótar.

Gera megi ráð fyrir töfum á umferð meðan á vinnunni stendur. Almennt er annasamt á veginum á þessum tíma dags.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.