Tafir eftir þriggja bíla árekstur á Vesturlandsvegi

Einn var fluttur til skoðunar á slysadeild eftir þriggja fólksbíla árekstur á Vesturlandsvegi við Grjótháls. Slökkviliði barst tilkynning um áreksturinn rétt eftir klukkan 18 í kvöld, segir Sigurjón Hendriksson, varðstjóri Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.

Miklar tafir eru í austur í átt að Mosfellsbæ. Sigurjón segist búast við töfum að minnsta kosti næsta hálftímann á meðan viðbragðsaðilar hreinsa vettvanginn.Þórgunnur Oddsdóttir


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.