Telja ekki ástæðu að fara að fordæmi Dana

Ísland er ekki á sama stað og Danmörk og nokkur önnur Evrópuríki, sem ætla að senda fólk sem hefur fengið synjun um alþjóðlega vernd til Rúanda í Afríku. Íslensk stjórnvöld telja ekki ástæðu til þess að fara þessa leið.

Ekki rætt meðal ráðherra eða í ríkisstjórn

Greint var frá því í fréttum í gær að Danmörk og fjögur önnur Evrópuríki ætluðu að senda fólk, sem hefur fengið synjun um alþjóðlega vernd, til Rúanda í Afríku strax á næsta ári.

Þetta tilkynntu forsætisráðherra Danmerkur og kanslari Austurríkis á fundi með fréttamönnum síðdegis í gær.

„Ja, þetta er ákvörðun sem þessi fimm ríki eru með í pípunum með einum eða öðrum hætti, Ísland að minnsta kosti telur ekki ástæðu til þess að fara þessa leið. Þetta hefur ekki verið rætt meðal ráðherra eða í ríkisstjórn þannig að við erum ekki á þessum stað.“

En nú hefur Ísland oft fylgt Danmörku að málum, finnst þér það koma til greina í þessu tilviki?

„Það þarf ekki, að minnsta kosti eins og staðan er núna hjá okkur, og þess vegna hefur þetta ekki verið rætt.“

Kristrún bendir á að það hafi orðið örar breytingar í útlendingamálum í talsverðan tíma hér á landi og innan Evrópusambandsins.

Stórt, erfitt en nauðsynlegt skref hafi verið stigið hér með því að koma á fót brottfararmiðstöð, sem þó muni tefjast um einhverja mánuði vegna húsnæðismála. Þörfin fyrir það úrræði að senda fólk til Rúanda sé ekki til staðar hér.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.