Þær Katrín Lilja, Guðlaug Esther, Bergdís, Klara og Katrín Líf skipa danshópinn Dans án hindrana.
Þær eru á aldrinum 11 til 18 ára, æfa hjá Danslistarskóla JSB og héldu í frækna för til Ahrensburg í Þýskalandi á dögunum.
120 keppendur frá fjórum löndum voru á mótinu. Stelpurnar eru fyrsti danshópurinn sem keppir þar fyrir Íslands hönd.
Yfirþjálfari hópsins, Lilja Helgadóttir, vildi búa til vettvang fyrir börn og ungmenni með sérþarfir til að njóta sín á eigin forsendum. Deildin Dans án hindrana hefur verið starfrækt í JSB í á fimmta ár. Lilja kennir hópnum ásamt Kolbrúnu Elvi Harðardóttur.
