„Þetta er bara eitthvað svona skrýtið sem manni fer að þykja vænt um“

Grafíska hönnuðinum Mána Sigurðssyni, sem hefur búið öll sín fullorðinsár í miðborginni, og kærustunni hans var brugðið þegar þau tóku eftir að teikningar af bílum með fallega mannlega ásjónu í gluggum bílastæðahúss við Vitatorg voru nánast allar á bak og burt fyrir fáeinum dögum, án samráðs við íbúa.

Parið býr í næsta nágrenni við bílastæðahúsið og ákvað að setja undirskriftarsöfnun í gang til varnar myndunum. Máni segir bílamyndirnar eitt það sem hafi fylgt honum frá því hann var krakki.

„Maður hefur séð þetta gerast annað slagið í borginni að eitthvað sem hefur alltaf verið uppi hverfi. Til dæmis bindishnútamyndin á húsi Sandholts við Laugaveg. Þetta eru svona hlutir sem verða að einhvers konar minnismerkjum,“ segir Máni.

„Það er leiðinlegt að sjá þetta hverfa og mér finnst óþarfi að láta svona hluti fjúka bara upp úr þurru án samtals. Við drifum okkur bara í að hengja nokkra miða í rúðurnar til að biðja um að hlífa þessari seinustu.“

Mörgum hafi greinilega orðið um og ó þegar kærasta Mána setti inn færslu á Instagram varðandi örlög myndanna, og sendu henni skilaboð vegna þess. Borgin, segir Máni aðspurður, verði grárri og leiðinlegri fyrir vikið. Mikilvægt sé að halda í eitthvað af því sem skapi sálina í borginni, sem líkist æ meira erlendri stórborg með fjölgun ferðamanna.

„Mér finnst mikilvægara að halda í eitthvað svona sem er sálin í borginni, eitthvað svona krúttlegt. Það er ekki eins og þetta séu einhver glæsileg listaverk. Þetta er bara eitthvað svona skrýtið sem maður tekur alltaf eftir og manni fer að þykja vænt um. Þessi Vitatorgsbygging yfirhöfuð er auðvitað stórskrítin en manni þykir samt ósköp vænt um hana með P-merkið þarna upp á og bílana.“

Myndirnar hafi ekki verið orðnar mjög snjáðar en eitthvað hafi rifnað af nokkrum myndunum. „Svona miðað við hvað þetta var búið að standa þarna lengi var þetta bara í nokkuð góðu standi.“

Undirskriftasöfnunin stendur í heilan mánuð að sögn Mána sem finnst að það þurfi að vera meira samtal við borgarabúa, ekki síst varðandi hluti sem hafi verið svona lengi til. Hann segist ekki enn hafa haft samband við borgina en hyggst gera það fljótlega. Þau kærustuparið hafa áhyggjur af því sem gæti tekið við.

„Það er annað sem okkur datt strax í hug sem hræðir okkur svolítið. Það er varðandi AI-grafík, hvernig hún er farin að poppa upp og allt í einu datt okkur í hug: Ó mæ god, hvað ef þau ætla að láta einhverja AI-grafík þarna í staðinn fyrir bílana eða eitthvað svona sálarlaust?“

Fréttastofa leitaði til upplýsingafulltrúa Reykjavíkur sem ætlar að grennslast frekar fyrir um örlög bílamyndanna.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.